Viðburðir þann

03.03.2006, kl.23:00 - 1:00 Tónleikar

Mood og KK

Norðurljósablús

Mood var stofnuð árið 2003 af þeim Bergþóri Smára (gítarleikara/söngvara), Inga S. Skúlasyni (bassa) og Friðrik Geirdal Júlíussyni (trommuleikara) og spilaði fyrst á Vídalín í Aðalstrætin í Reykjavík. Þessir menn höfðu spilað mikið saman í gegnum tíðina í hljómsveitum sem einbeittu sér að blústónlist. Spilað var víða, allt frá Gauki á Stöng til Blúshátíðar Ólafsfjarðar. Í fyrstu var nær eingöngu blús á prógrammi Mood en svo tóku meðlimirnir að bæta inn eigin lögum. Mood er sem stendur að vinna að upptökum á eigin efni. Að þessu sinni spilar Þorleifur Guðjónsson bassaleikari með Mood og KK er gestur hljómsveitarinnar. KK (Kristján Kristjánsson) er fæddur í Minnesota árið 1956 en flutti heim til Íslands með fjölskyldu sinni tíu ára gamall. Á unglingsárum var hann í ýmsum hljómsveitum en flutti búferlum til Svíþjóðar 1977. KK þvældist um meginland Evrópu með hópi farandspilara um skeið en var alkominn heim til Íslands 1990. KK hefur frá þeim tíma sent frá sér sjö einherjaplötur, en einnig starfað með fjölda annara listamanna. KK hefur samið tónlist fyrir bæði leikhús og kvikmyndir og hlotið verðlaun bæði fyrir lagasmíðar og hljóðfæraleik. (www.skemmtifelag.is)

www.skemmtifelag.is

Umsjónaraðili

Kaffi Hornið
Hafnarbraut 42
780 Hornafirði
780  Höfn

ingo@eldhorn.is
 

Viðburðir

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica