Viðburðir

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

IFE_TOLENTINO_og_Co
09.07.2006, kl.22:00 Tónleikar

Ife Tolentino á Hótel Höfn sunnudagskvöld

Hinn frábæri brasilíski söngvari og gítarleikari, Ife Tolentino mun koma til Hafnar og spila sólríka og seiðandi bossa nova- og sambatónlist fyrir Hornfirðinga. Ferðin til Hafnar er upphaf á ferð hans um landið en hann mun spila með félögum sínum á Vopnafirði, Seyðisfirði og í Reykjavík. Með honum koma fram þeir Ómar Guðjónsson gítar, Óskar Guðjónsson saxófónn (Meisalingar) og Þorvaldur Þór Þorvaldsson sem spilar á trommur. Þetta er í fimmta sinn sem Ife kemur til landsins og hefur hann ávallt fengið frábærar viðtökur og komið öllum í sumarskap.

Umsjónaraðili

Listvinasjóður Hornafjarðar
Nýheimum, Litlubrú 2

listvinasjodur@hornafjordur.is
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica