Viðburðir þann

Þórbergssetur
13.10.2006 - 14.10.2006, kl.14:00 Skemmtanir

Málþing um Þórberg Þórðarson

Þann 13. og 14. október verður haldið málþing um Þórberg Þórðarson að Þórbergssetri á Hala í Suðursveit. Málþingið er haldið í tilefni af opnun Þórbergsseturs í sumar og auk fjölbreytilegra fyrirlestra verður boðið upp á göngu- og landkynningarferðir um sögusvið Suðursveitarbóka Þórbergs. Málþingið er öllum opið og skráning fer fram hjá Soffíu Auði Birgisdóttur, starfsmanni Háskólaseturs á Höfn, í síma 4708042 og 8482003 eða í tölvupósti: soffiab@hi.is. Þátttökugjald er 3.500 kr. og innifalið í verðinu er kaffi og kvöldverður á föstudag, hádegisverður á laugardag og aðgangur að sýningu á Þórbergssetri. Nauðsynlegt er að koma með hlý útiföt og regnföt, því ,,stundum" rignir í Suðursveit. Ef fólk vill lengja dvölina, og nota sunnudaginn til frekari útiveru og söguferða þá eru merktar gönguleiðir í nágrenni Hala og að Klukkugili í Papbýlisfjalli.


Hægt er að panta gistingu á Hala í síma 8672900, á Gerði í síma 8460641, í Lækjarhúsum í síma 4781517 , á Smyrlabjörgum í síma 4781074 og á Skálafelli í síma 8945454.


Dagskrá málþings Þórbergsseturs 13. og 14. október 2006

Föstudagur 13. október

14:00 Þorbjörg Arnórsdóttir setur þingið.

14:15 Erindi. Skáldið á Skriðuklaustri og ofvitinn úr Suðursveit - einn óábyrgur samanburður. Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur.

15:00 Erindi. Kvöldlestur í sveitasímann. Um Þórberg Þórðarson og Halldór Laxnes í sveitasögum Jóns Kalmans Stefánssonar. Ingi Björn Guðnason bókmenntafræðingur.

15:30 Erindi. ,,Hvernig ferðu að því að muna þetta allt" Um Þórberg Þórðarson og minnistækni. Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur.

16:00 Kaffihlé.

16:20 Erindi. ,,Að hlusta á nið aldanna." Náttúruskynjun Þórbergs. (Myndasýning)Undirbúningur fyrir ferð að eyðibýlinu Felli í Suðursveit. Þorbjörg Arnórsdóttir.

16:40 Landkynningarferð að eyðibýlinu Felli, að lesa saman munnmælasögur,
fornleifar, bókmenntir og umhverfi. Leiðsögn Fjölnir Torfason.

19:00 Kvöldverður: (silungur og rabarbaragrautur með rjóma). Dinnertónlist, séra Einar G. Jónsson.

20:30 Upplestur: Strand Serenu 1906 á Steinafjöru. Frásaga eftir Steinþór Þórðarson.

21:00 Opnað inn á sýningu á Þórbergssetri.


Laugardagur 14. október

10:00 Erindi. ,,Þórbergur Þórðarson hefur engan stíl" Kristján Eiríksson
íslenskufræðingur.

10:30 Müllersæfingar. Valdimar Örnólfsson íþróttakennari

11:00 Erindi. Bréfbátaöld í Suðursveit og Bréfbátarigning Gyrðis. Fríða Proppé.

11:30 Erindi. Bara stílisti og sérvitringur? Um Þórberg í skugganum. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir rithöfundur.

12:00 Hádegisverður: (Kjötsúpa og rúgbrauð með kæfu).

13:15 Erindi. Hverjir voru fyrstu íbúar Suðursveitar? Fjölnir Torfason fjallar um gamlar munnmælasögur um Papbýli ( myndasýning).

13:45 Ferðalag í Papbýli hið forna undir leiðsögn heimamanna.

17:00 Talað við steina. Þingslit við Prestastól, stein undir austurhlíðum Steinafjalls.

 

 

Umsjónaraðili

Þórbergssetur
Hala, Suðursveit

thorbergssetur@simnet.is
www.thorbergssetur.is
 

Viðburðir

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica