Viðburðir þann
Nýheimadagur
Föstudaginn 24. nóvember frá kl. 12 og 17 verður haldin kynning á starfsemi og húsnæði þekkingarsetursins Nýheima.
Nýheimar eru stór vinnustaður og í dag eru 20 fyrirtæki eða stofnanir með starfsemi sína í húsinu og þar vinna um 40 manns.
Starfsmenn Nýheima bjóða gestum og gangandi að koma í Nýheima og kynna sér þá fjölbreyttu starfsemi sem fer fram í húsinu.
Dagskrá hefst kl. 12.
Boðið verður uppá kaffi og kleinur.
Nemendur Tónskólans skemmta gestum milli kynninga og nemendur Heppu- og Hafnarskóla kynna verðlaunuð nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefni og legóþrautabrautir.
Lifandi jólalamb verður til sýnis og ómskoðun sýnd, eins verður til sýnis lifandi leturhumar og áll og kennsla í gerð jólakransa.
Það verður því líf og fjör í Nýheimum á föstudaginn og eru allir hvattir til þess að skoða húsnæðið og kynna sér þá starfsemi sem þar fer fram.
Umsjónaraðili
NýheimarLitlubrú



