Viðburðir þann

01.05.2008 - 04.05.2008 Tónleikar

Hammondhátíð á Djúpavogi

Tónlistarhátíð á Djúpavogi

(G)ÓÐIR AUSTFIRÐINGAR
Fimmtudagur 1.maí kl. 20.30
Hátíðin sett.
Blúsbrot Garðars Harðar opnar hátíðina en í blúsbrotinu eru nokkrir af fremstu tónlistarmönnum Austfirðinga.
Hulda Rós og Rökkurtríóið
er Hornfirsk hljómsveit sem spilar djass og blús.

UPPREISNARKVÖLD
Föstudagur 2.maí kl. 21.00

Dóri Braga mætir með RIOT bandið sitt sem inniheldur tónlistarsnillinga úr hinum ýmsu geirum. Gítarleikarar eru Halldór Bragason og Björn Thoroddsen með þeim í hljómsveitinni eru þeir Jón Ólafsson píanóleikari, Ásgeir Óskarsson trommuleikari og Jón Rafnsson, bassaleikari.

FUNKY FUNKY FUNKY
Laugardagur 3.maí kl. 22.00

Stórsveit Samma með hvorki meira né minna en 18 manns innanborðs mun gera allt vitlaust

GULLSÖNGUR OG HAMMOND
Sunnudagur 4. maí kl. 15:00

Kristjana Stefánsdóttir magnar upp ljúfa tóna orgelsins með sínum seiðandi söng en áður en hún stígur á stokk mun Kirkjukór Djúpavogs ásamt Berglind Einarsdóttur flytja allrahanda tónlist þar sem allir fá eitthvað við sitt hæfi. Þeim til aðstoðar verður sjálfur Agnar Már Magnússon, hammondsnillingur. Á þessum tónleikum verður frumfluttur á Íslandi kafli úr fiðlusónötu eftir J.S. Bach sem þær söngkonurnar, Berglind og Kristjana, syngja við guðlegan hammondundirleik.

Allir tónleikar fara fram á Hótel Framtíð fyrir utan sunnudagstónleikana sem fara fram í Djúpavogskirkju.

 

Miðapantanir í símum 845-1104 eða 478-8887.

Verð: Fimmtudagur 1.500.- Föstudagur 2.000.- Laugardagur 3.000.- Sunnudagur 1.500.- Kaffihlaðborð í hléi innifalið

 

Nánari upplýsingar má finna á www.djupivogur.is/hammond

 

 

djupivogur.is/hammond

 

Viðburðir

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica