Viðburðir þann
Styrktartónleikar
Næstkomandi fimmtudagskvöld verður efnt til styrktartónleika í íþróttahúsinu á Höfn. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Þar koma fram hornfirskir listamenn, með fjölbreytta dagskrá.
Það er von þeirra sem að þessum styrktartónleikum standa að sem allra flestir sjái sér fært að mæta og leggja þessu málefni lið.
Allur ágóði af tónleikunum rennur til Öldu Berglindar Þorvarðardóttur.
Þeir sem koma fram eru:
1. Kvennakór Hornafjarðar
2. Hilmar og fuglarnir
3. KUSK
4. Blásarakvartett
5. Vigil
6. Hulda Rós og Rökkurtríóið
7. Hljómsveit Gunnlaugs Þrastar
8. Stakir Jakar, félagar úr Karlakórnum Jökli
9. Atriði úr Rocky Horror
10. Parket
11. Sigríður Sif.
Kynnir er Björg Erlingsdóttir.
Aðgangseyrir er kr. 1000. Ekki er hægt að greiða með korti
Umsjónaraðili
Íþróttahús Höfn780 Höfn



