Viðburðir

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

Vika símenntunar
22.09.2008 - 28.09.2008 Námskeið

Vika símenntunar

Nú fer í hönd árleg vika símenntunar 22. - 28. sept. Markmið með henni er að hvetja fólk til að leita sér þekkingar og minna á að öll fræðsla nýtist til góðs í leik og starfi.
Starfsmenn símenntunarmiðstöðvanna verða á ferð og flugi þessa viku að kynna starfsemi sína og veita ráðgjöf varðandi nám og störf. Mörgum finnst erfitt að hugsa um að hefja nám eftir langa fjarveru frá skólabekk, þótt þá langi til að læra. Ragnhildur, námsráðgjafi Þekkingarnetsins býður upp á opið örnámskeið í námstækni og hugrænni sjálfshvatningu í Nýheimum í hádeginu á föstudag. Hún hvetur fólk til að koma, fá sér súpu og brauð í teríunni og taka svo þátt í námskeiðinu en það hefst kl. 12.30 - 12.45 og er ókeypis.

Í hádeginu á fimmtudag (25.) er forsvarsmönnum fyrirtækja í ferðaþjónustu boðið á súpufund á Smyrlabjörgum með starfsmönnum ÞNA og fulltrúum frá FAS. Markmið þessa fundar er að ræða stöðu og þróun í ferðaþjónustu sem og þörf greinarinnar fyrir fræðslu og menntun. Starfsmenn Þekkingarnetsins bjóða fyrirtækjum upp á námskynningar og ráðgjöf á vinnustað í viku símenntunar.

Fyrirtæki sem vilja fá slíka heimsókn hafi samband í síma 470 8030 eða í tölvupósti; ragnhildur@fna.is, nina@fna.is, fna@fna.is  og bókað kynningar.

Umsjónaraðili

Þekkingarnet Austurlands
Nýheimar
780  Höfn

ragnhildur@tna.is
www.tna.is
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica