Viðburðir þann
Málþing um Einar Braga rithöfund og atómskáldin-FRESTAÐ !
Haustþing á Þórbergssetri
Málþingið hefst kl. 14:00 á laugardegi og um kvöldið verður hátíðarkvöldverður í Þórbergssetri. Á sunnudeginum heldur dagskrá áfram til kl. 15:00.
Verða fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar um lífsstarf Einars Braga út frá ýmsum sjónarhornum, sem og um þann hóp skálda sem hann er iðulega kenndur við: Atómskáldin. Meðal fyrirlesara verða rithöfundar, bókmenntafræðingar og MA nemar við Háskóla Íslands. Dagskráin verður kynnt síðar.
Nánari upplýsingar um málþingið veitir Soffía Auður Birgisdóttir, verkefnastjóri á Háskólasetrinu á Höfn.
Sími 4708042 og 8482003. Netfang: soffiab@hi.is
Umsjónaraðili
ÞórbergsseturHala, Suðursveit
thorbergssetur@simnet.is
www.thorbergssetur.is



