Viðburðir þann

WOW
07.11.2008 - 08.11.2008 Ráðstefna

Ráðstefna um atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökuls

-uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar-

Föstudaginn 7. og laugardaginn 8. nóvember verður haldin ráðstefna á Höfn og á Smyrlabjörgum um atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökuls.Ráðstefnan hefst með ávarpi ferðamálastjóra Ólafar Ýrar Atladóttur. Á föstudagskvöldinu verður uppskeruhátíð ferðaþjónustunna haldin á Smyrlabjörgum og hefst með borðhaldi kl. 20.30

Ráðstefnan Atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs verður haldin á Höfn og Smyrlabjörgum 7.-8. nóvember n.k.

Mörg áhugaverð erindi verða á dagskrá og mikilvægt fyrir þá sem búa á áhrifasvæðum Vatnajökulþjóðgarðs að mæta.

Eins og sést á dagskránni hér að neðan (pdf) hefst ráðstefnan á föstudegi í Höfn en um kvöldið flytjum við okkur um set yfir á Hótel Smyrlabjörg þar sem haldin verður Uppskeruhátíð Ríki Vatnajökuls og Ferðamálafélags A-Skaftafellssýslu. Dagskrá laugardagsins mun einnig fara fram á Smyrlabjörgum.

Frítt er á ráðstefnuna en verð á uppskeruhátíðina er 4.900 kr.

Tilkynna þarf um þátttöku á ráðstefnuna og uppskeruhátíðina hjá Söndru Björgu í netfang sbs@hi.is eða í síma 470-8044 í síðasta lagi mánudaginn 3. nóvember 2008.

Mögulegt er að gista á Smyrlabjörgum en panta þarf herbergi þar, sími 478-1074.

 

Flugfélagið Ernir verður með leiguflug frá Höfn til Reykjavíkur á laugardeginum kl. 16.30 en panta þarf hjá Erni í síma 562-4200 og taka fram að viðkomandi er ráðstefnugestur.

 

Með von um að sjá sem flesta

Rósa og Sandra

  

Sjá DAGSKRÁ (PDF)

 

 

Umsjónaraðili

Ríki Vatnajökuls ehf
Litlubrú 2, Nýheimum

info@rikivatnajokuls.is
www.visitvatnajokull.is
 

Viðburðir

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica