29.06.2009, kl.20:00
Skemmtanir
Fyrirlestur um humar á Humarhátíð
í Pakkhúsinu mánudag 29. júní kl. 20
Guðmundur í Matís vera með áhugaverðan fyrirlestur um humar í Pakkhúsinu í kvöld klukkan 20:00. Í fyrirlestrinum fjallar Guðmundur vítt og breitt um humar. Farið er yfir helstu tegundir og furðulegar tegundir humra skoðaðar. Af nógu er að taka enda fleiri en 500 humartegundir þekktar í heiminum. Áhersla er á létta fræðslu um líffræði íslenska leturhumarsins og sögu veiða hér á Hornafirði. Sem dæmi um spurningar sem leitast verður við að svara má nefna:
• Hvert er útbreiðslusvæði humars á íslandsmiðum?
• Veiðum við mikið miðað við aðrar þjóðir?
• Hvernig þekkir maður í sundur karl og kerlingu?
• Hvað er stærsti humarinn sem veiðst hefur?
• Hvenær byrjuðu Hornfirðingar að veiða humar?
• Hvernig gengur tilhugalífið fyrir sig?
• Hvernig búa humrar?
Markmiðið með fyrirlestrinum er að allir sem á hlýði viti aðeins meir um humar en áður og reynt verður að haga frásögn þannig að enginn sofni.
Umsjónaraðili
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780
Höfn
menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod