Viðburðir þann
Ísklifurhátíð Íslenska alpaklúbbsins í Öræfum
Ísklifurhátíð Íslenska alpaklúbbsins
Ísklifurhátíð Íslenska alpaklúbbsins verður haldin í Öræfunum 25. -28. febrúar.
Það er af nægu að taka Öræfunum eins og flestir vita. Einar Öræfingur er á vaktinni fyrir okkur og fylgist grannt með lóðréttu vatnsföllunum. Þó að nóg sé að gera fyrir ísklifrara af öllum gerðum ættu áhugasamir endilega að mæta, þar sem nóg verður að gera fyrir þá sem mæta með hvatningardúskana og/eða gönguskóna. Einnig verður í boðið ofanvaðskennsla fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref og vantar leiðsögn um tryggingar eða tækni. Einnig verður hin árlega kjötsúpa með skemmtilegum umræðum á boðstólnum sem er sannarlega næg ástæða til að mæta á svæðið!
Gisting verður í boði í Vesturhúsum og kostar nóttin þar 3000kr. Það er takmarkað pláss í gistingu í Vesturhúsum svo fyrstur kemur fyrstur fær.
Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu Íslenska alpaklúbbsins
Umsjónaraðili
Ríki Vatnajökuls ehfLitlubrú 2, Nýheimum
info@rikivatnajokuls.is
www.visitvatnajokull.is



