Viðburðir

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

veggurinn minn
09.04.2010 - 16.04.2010, kl.9:00 - 17:00 Sýning

Veggurinn minn

Vegginn minn þessa viku á Ingibjörg Steinsdóttir

Veggin minn þessa vikuna á Ingibjörg Steinsdóttir Borðið: Gaf mér gömul kona sem Ingibjörg hét og ég var skýrð í höfuðið á, er kom á sama tíma á hverjum morgni á æskuheimili mitt á Eyrarbakka til að fá nýja kúamjólk á brúsann sinn. Kona þessi var einstæðingur og bláfátæk, en borðið og forláta krús, sem hún ánafnaði mér líka, gaf henni konungborin kona í kring um 1920 fyrir saumaskap og fannst henni mikið til þess koma og bað mömmu að láta þessa 2 hluti ávallt fylgja mér, en hún lést á 5 ára afmælisdegi mínum. Foladsmyndin: Keypti ég af ungum læknakandidat, sem var með á sýningu á Selfossi 1974. Hann var að afla tekna fyrir framhaldsnámi sínu og var að gera tilraun með frauðplast, liti, striga og fl. og var með nokkrar slíkar myndir, en ég heillaðist af þessu fallega folaldi. Ikonarnir: Ég á marga fallega Ikona, en valdi þessa tvo. Þann minni keypti ég í munkaklaustri í Austurríki, þar sem Kiljan sat og skrifaði, hér á árum áður. Sá stærri heitir “Hin milda móðir” , sem vinir mínir gáfu mér er móðir mín lést árið 2000 og þykir afar vænt um hann, líkt og alla mína Ikona sem eru orðnir þó nokkuð margir. Bæði þá sem ég hef keypt mér, hér og erlendis, einnig þá sem ég og fleiri hafa búið til, en það er afar gaman að búa til Ikona, eins og þeir vita sem það hafa gert..

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica