Viðburðir

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

Sossa
03.05.2010 - 10.05.2010, kl.9:00 - 17:00 Sýning

Veggurinn minn

Vegginn minn eiga María Gísladóttir og Ari Þorsteinsson

Sossa, olía á striga. Þannig vildi til að við hjónin hittum listakonun Sossu í matarboði hjá sameiginlegum vinum á Akureyri. Þetta var um það bil sem Sossa var að slá í gegn og hafði fengið mjög góða dóma fyrir sýningu sem hún var með í Reykjavík. Til að gera langa sögu stutta þá endaði matarboðið með því að við pöntum málverk af listakonunni. Hún fór síðan heim að mála og kom nokkru síðar til okkar með málverkið. Hún hafði þá málað þessa mynd af mér, Maríu. Á þessum tíma var Sossa og er reyndar enn mikið að mála fólk og oft málar hún bara helmingin af því en hún hélt því fram þarna að fólk notaði einungis helminginn af hæfileikum sínum dagsdaglega og það endurspegla verk hennar. Hér er slóð á heimasíðu Sossu ef fólk vill kynna sér verk hennar betur. www.sossa.is

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica