Viðburðir

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

Á Lónsheiði
21.05.2010 - 23.05.2010 Ráðstefna

Undir Hornafjarðarmána

Ráðstefna á vegum Sagnfræðingafélags Íslands

Helgina 21.-23. maí verður haldin ráðstefnan Undir Hornafjarðarmána, í Suðursveit og á Höfn, á vegum Sagnfræðingafélags Íslands, Félags þjóðfræðinga, Háskólaseturs Hornafjarðar og Menningarmiðstöðvarinnar.

DAGSKRÁ

LAUGARDAGUR 22. maí

 

9-10:30 Málstofa á Þórbergssetri.

Julian D´Arcy: „Áfram með smjérið.“ Vandamálið við að þýða Þórberg á ensku.

Rósa Þorsteinsdóttir. Að segja hverja sögu eins og hún var. Söfnun Hallfreðar Arnar Eiríkssonar á sögum úr Suðursveit.

            Már Jónsson: Rúmföt í Skaftafellssýslum um miðbik 19. aldar.

10:30-11:00 Gönguferð með Fjölni Torfasyni.

11:15  Kálfafellskirkja

Margaret Cormack: Kálfafellsstaður í máldögum og þjóðsögum.

12-13:00 Hádegisverður á Smyrlabjörgum.

Júlíana Þóra Magnúsdóttir: Þjóðsagnasafnarinn frá Kálfafellsstað. Um Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm og þjóðsagnasöfnun hennar.

14:30  Geitafell/ Hoffell Útifyrirlestur: Arnþór Gunnarsson: Mannlíf, náttúra og ferðamennska í sögulegu ljósi.

            Kaffi

            Útifyrirlestur: Þorvarður Árnason fjallar um ljós- og kvikmyndun sína á Hoffellsjökli.

16:00   Hólmur, Laxárdal í Nesjum: Bjarni F. Einarson, fornleifafræðingur, kynnir uppgröftinn.

18:00   Komið í Nesjaskóla þar sem gist verður og síðan fer rútan inn á Höfn þar sem fólk fer í  kvöldmat. Fyrir kvöldmat verður í boði að skoða Jöklasetrið á Höfn.


 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica