Viðburðir þann
Íbúafundur
Íbúafundur verður á Hótel Höfn kl. 20.00 fimmtudaginn 18. nóvember. Þar verður farið yfir stöðuna í heilbrigðismálum og fjármálum sveitarfélagsins. Í umræðunni á Hornafirði er lögð áhersla á að verja eftirfarandi grunnþjónustu í heilbrigðismálum:
o Almenna heilsugæslu
o Hjúkrunarþjónustu fyrir langveika og aldraða
o Bráðaþjónustu fyrir veika og slasaða
o Fæðingar og sængurlegu samkvæmt skilgreiningu um D-fæðingarstað
o Eftirlit með sjúklingum sem lent hafa í slysi eða bráðaveikindum og bíða flutnings á hærra eða lægra þjónustustig.
o Endurhæfingu eftir aðgerðir, veikindi og slys, sem styttir legutíma á hátæknisjúkrahúsi
o Hvíldarinnlagnir og skammtímavistun til greiningar og endurhæfingar
o Líknandi meðferð
o Lyfjagjöf sem annars kallaði á dagsheimsókn til Reykjavíkur
Umsjónaraðili
RáðhúsHafnarbraut 27
780 Höfn
radhus@hornfjordur.is
www.hornafjordur.is/stjornsysla



