Fréttir Þorrablót
Þorrablót í Suðursveit
Þorrablót í Suðursveit
Þorrablót í Suðursveit (myndasafn MG)

Allir eru velkomnir á Hrollaugsstaðablót

17.01.2007

Nú sem endranær, þegar jól og áramót eru að baki tekur við andleg söfnun fréttaefnis síðasta árs, hjá þorrablótsnefndum vítt og breytt. Þorrablótsnefnd Mýra og Suðursveitar er þar engin eftirbátur,og fær alltaf til liðs við sig fulltrúa búsetta á Höfn. Að þessu sinni er mikil breidd í nefndinni og undanfarnar vikur hefur hluti nefndarfólks verið út og suður bæði á sjó og landi,allt frá Grundarfirði til Kolbeinseyjar sjóleiðis og stanslausar ferðir milli Selgoss og Hafnar. (Líkt og þvottaskutlan og póstbíllinn) Skyggnst verður inn í æðri heima og horft inn í framtíð, nútíð og fortíð, daglegu lífi sauðfjárbóndans gerð góð skil. Samfélagið, allt frá Lónsöræfum til Lómagnúps tekið fyrir í nærmynd . Í stuttu máli, allt er á fullu við undirbúning þorrablóts að Hrollaugsstöðum þann 3. febr. næstkomandi og mikill metnaður hjá nefndarfólki enda Hrollaugsstaðablótin landsfræg.

Ekki gleyma okkur og takið daginn frá.
Þorrablótsnefnd '07

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica