Hornfirðingurinn, veittur á þorrablóti Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu
Að sögn nefndarmanna þá er um að ræða verðlaunastyttu sem er fyrirbæri líkt og Óskarinn, en það er verðlaunaafhending sem getur líkt sér við afhendingu Hornfirðingsins. Afhendingin sjálf verður að sjálfsögðu aðalatriðið og verða verðlaunahafar að lifa við það eins og á öðrum góðum verðlaunahátíðum. Veitt verða verðlaun í hinum ýmsu flokkum fyrir framúrskarandi frammistöðu og eru margir kallaðir en fáir útvaldir. Svo er bara að sjá hverjir hinir útvöldu eru. Mikil ásókn hefur verið í miða á blótið og stefnir í miðaþurrð með þessu framhaldi. Gríðarleg þátttaka virðist ætla að verða en þegar hafa yfir 200 verið skráðir á blótið. 
Nefndin beinir þeim tilmælum til þeirra sem eru búnir að skrá sig að ganga frá miðakaupum ef nokkur kostur er. Það verður einnig tekið við greiðslu við innganginn, eins og ævinlega, en það mun létta mikið á ef fólk getur lagt inn á reikning nefndarinnar og þannig gengið frá miðakaupunum.



