Þorrablót Hornfirðinga á Stór-Reykjavíkursvæðinu
Að venju er undirbúningur fyrir Þorrablót Hornfirðinga á Stór-Reykjavíkursvæðinu í fullum gangi á þessum tíma en blótið fer fram laugardagskvöldið 9.febrúar.
Það verður hljómsveitin Ungmennafélagið sem spilar fyrir dansi en hana skipa Gunnlaugur Sigurðsson á gítar, Björn Gylfason á bassa, Þorbergur Ólafsson Skagfjörð á trommum og Bjartur Logi Finnsson er söngvari.
Á þessu þrítugasta og fimmta þorrablóti Hornfirðinga á Stór-Reykjavíkursvæðinu sem fer fram í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi verður veislustjórinn að þessu sinni Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir af Fiskhólnum.
Nefndina 2013 skipa: Ásta Elínardóttir, Börkur Geir Þorgeirsson, Emil Örn Morávek, Hrafnhildur Halldórsdóttir, Jóna Benný Kristjánsdóttir og Nanna Halldóra Imsland
Heiðursgestir verði á þessu blóti Zophonías Torfason og Guðrún Ingólfsdóttir.
Nú er bara að draga fram dansskónna, bursta af ballgallanum og skrá sig á þorrablótið. (hér)



