Fréttir Þorrablót
Þorrablótsnefnd brottfluttra Hornfirðinga 2010
Þorrablótsnefnd brottfluttra Hornfirðinga 2010
Anna Vilborg, Jóhanna Arnbjörns, Dóra Meisa, Hilmir Steinþórs, Jón Ingi og Stefán Rósar.

Þrítugasta og annað þorrablót Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu

10.01.2010

Niðurtalning á Þorrablót Hornfirðinga á Stór-Reykljavíkursvæðinu er hafin, en blótið verður haldið laugardaginn 6. febrúar n.k. í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Tekist hefur að halda miðaverði á væntanlegt Þorrablót í algeru lágmarki eða kr.5.500 en það má að sjálfsögðu þakka dyggri tryggð blótsins við Veisluþjónustuna, sem þorrablótsnefnd Hornfirðingablótsins hefur skipt við nánast án undantekninga í 20 ár.

Að þessu sinni skipa nefndina: Anna Vilborg Sölmundardóttir, Stefán Rósar Esjarsson, Halldóra Eymundsdóttir, Jóhanna Arnbjörnsdóttir, Jón Ingi Ingibergsson og Hilmir Steinþórsson.

Það verður Hljómsveit Hauks Þorvaldssonar og Bjartur Logi sem munu sjá um dansinn en ekki þarf að fara mörgum orðum um þessa viðfrægu hljómsveit og sennilega þá langlífustu sem Hornafjörður hefur alið eins og segir á vefsíðu nefndarinnar.

Myndir frá blótinu 2009  

Heimasíða nefndarinnar

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica