Með því að kjósa xB tryggir þú Hjalta Þór Vignisson áfram sem bæjarstjóra
Að treysta
Mér finnst það vera forréttindi að búa á Hornafirði. Náttúran og umhverfið er einstakt og eftir að hafa búið annarsstaðar gerir maður sér betur grein fyrir því. Í leik- og grunnskóla vinnur mikið af öflugu fagfólki, í oft á tíðum erfiðum aðstæðum. Og allir eru tilbúnir að gagnrýna án viðeigandi lausna eða án þess að hafa hafa kynnt sér málin til hlítar.
Val eða ekki val
Við rekum tvo leikskóla með tvær stefnur Sumir halda því fram að valið sé ekkert þar sem annar leikskólinn sé alltaf fullur, en valið gæti legið í því að ef að þú kemst ekki inn á þann leiksóla sem þú vilt að barnið þitt fari inn á, ættir þú að geta farið inn á hinn leikskólann á meðan og skipt svo aftur þegar pláss losnar. Ýmsar reglur og skyldur hvíla á herðum fagfólks í leikskólum sem við foreldrar höfum oft á tíðum ekki kynnt okkur nægilega vel samanber það hvað hver einstaklingur þarf mikið pláss miðað við lengd viðveru og ýmislegt annað sem takmarkar þá oft fjöldann á viðkomandi leikskóla. Við erum líka misjöfn sem einstaklingar og þurfum mismikla ummönnun. Við verðum stundum að gefa starfsfólki frið og tíma til að vinna vinnuna sína og móta þær stefnur sem eru í gangi. Skipstjóri sem skiptir um veiðarfæri í hvert skipti sem hann kemur í land er ekki líklegur til stórra afreka. Fólki sem starfar í skólanefnd á að vera treystandi til að fylgjast með og grípa inn í ef þurfa þykir í samstarfi við starfsfólk og foreldra.
Fagmennska og umhyggja
Ef sú fagmennska og umhyggja sem viðhöfð er á HSSA, verður enn þegar ég verð gamall þarf ég ekki að kvíða miklu hvað það varðar. Þar hefur starfsfólk með útsjónarsemi og dugnaði náð fram miklum sparnaði í rekstri svo eftir hefur verið tekið, án þess þó að það bitni á skjólstæðingunum. Það er ekki fyrsti kostur þeirra öldruðu eða sjúku að leggjast inn á stofnun, þegar aldurinn eða sjúkdómar fara að hrjá fólk er byrjað á að veita þjónustu inn á heimili þess aldraða eða veika. Hér á Höfn á fólk kost á að vera á eigin heimili með heimilishjálp, heimahjúkrun og heimsendum mat. Heimahjúkrun og matarsendingar eru alla daga ársins og fleytir það mörgum áfram lengi vel.
Með gleði í hjarta
Mikilvægt er að laða að fleira fólk. Ein forsenda þess er að eiga val á húsnæði til búsetu. Við þurfum að finna lausnir í húsnæðismálum sem gefa fólki kost á að leigja meðan það er að finna sig í samfélaginu. Næg atvinna er ekki nóg, tækifærin þurfa að vera fjölbreyttari. Ýmislegt gott er þó í farvatninu t.d. gagnaver og vatnsátöppunarverksmiðja. Smáframleiðsla í matargeiranum á eftir að vaxa hér og dafna með réttum stuðningi. Við höfum alla möguleika til að efla ferðaþjónustuna enn frekar. Í þessu öllu verðum við að standa saman og styðja hvort annað til að geta náð árangri en ekki að láta þær systur öfund og afbrýðisemi ráða ferðinni. Með gleði í hjarta og bjartsýni að leiðarljósi getum við tekist á við krefjandi framtíð á þessum yndislega stað sem við búum á.
Ágæti kjósandi með því að kjósa X B tryggir þú einnig bæjarstjóra, Hjalta Þór Vignisson, áfram í starfi næstu fjögur árin.



