Framsókn
Ásgerður K. Gylfadóttir
Ásgerður K. Gylfadóttir
Skipar 2. sæti á lista Framsóknarmanna

Gefst tækifæri á því að taka þátt í að móta framtíðina

Ásgerður K. Gylfadóttir

Sveitarfélagið okkar er vel rekið og við höfum borið gæfu til góðra verka mörg undangengin ár. Með því að bjóða mig fram í annað sæti á lista Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra gefst mér tækifæri á því að taka þátt í að móta framtíðina og takast á við þau verkefni sem framundan eru.

Verkefni framtíðarinnar í heilbrigðismálum tel ég vera að standa vörð um þá þjónustu sem nú er til staðar og telst til grunnþjónustu. Öflug heimaþjónusta gerir öldruðum og sjúkum kleift að viðhalda sjálfstæðri búsetu, mæðravernd og fæðingahjálp eru lífsgæði sem ungt fólk gerir kröfu til og eflir samfélagið. Þetta eru málefni sem eru mér hugleikin auk annarra þátta svo sem bættri aðstöðu heimilisfólks á hjúkrunardeild HSSA með löngu tímabærri viðbyggingu.

Málefni grunnskólanns hafa verið í brennidepli á því kjörtímabili sem er að líða og hefur vel tekist til við flutning skólahalds til Hafnar. Fyrstu skrefin hafa verið stigin og nú ríður á góðum stuðningi sveitarfélagsins í áframhaldandi uppbyggingu og þróun.  Sveitarfélagið hefur valið að reka tvo leikskóla sem starfa eftir sitt hvorri hugmyndafræðinni sem veitir foreldrum ákveðið val við byrjun skólagöngu ungviðisins. Skiptar skoðanir eru um þessa tvískiptingu en ótvírætt er að í skólunum er unnið gott og uppbyggjandi starf sem skilar sér í frískum og flottum krökkum.

Verkefni okkar sem sækjumst eftir því að koma að stjórn sveitarfélagsins er að tryggja að grunnþjónusta sú sem við búum við í dag verði ekki skert og koma auga á þá vaxtarsprota sem eru til staðar, hlúa að þeim og fá þá til að dafna í góðu og heilbrigðu mannlífi.

Ásgerður K. Gylfadóttir

Skipar 2. sæti á lista Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra.

Senda grein

Framsókn

Gefst tækifæri á því að taka þátt í að móta framtíðina

Ásgerður K. Gylfadóttir

29.4.2010 Framsókn

Þetta vefsvæði byggir á Eplica