Framsókn
Ásgrímur Ingólfsson
Ásgrímur Ingólfsson

Ferðasjóður, Sindravellir og forvarnarmál

Ungmennafélag á að vera hafið yfir pólitískar þrætur og er það ósk mín að svo verði í framtíðinni.  Ég get þó ekki látið hjá líða að svara grein Valdemars, eins frambjóðenda sjálfstæðismanna, en mér þykir lítt við hæfi þegar hann blandar stjórn Sindra þar inn í pólitíska umræðu. 

Ferðasjóður

Ekki ætla ég að fara að deila við hann Valdemar um ferðasjóð ÍSÍ og veit ég að það er sama hvar í flokki menn standa þegar kemur að þeim ágæta sjóði. Allir eru sammála að hann skuli verja með kjafti og klóm. Þessi sjóður er mjög  mikilvægur fyrir félög sem þurfa að ferðast um langan veg eins og oft hefur verið bent á þegar þessi mál hafa verið rædd. Stjórn ÍSÍ  er mjög meðvituð um þetta og hefur verið að hvetja stjórnir ungmannafélaga út um allt land að tala við sína þingmenn.  Ólafur Rafnsson formaður ÍSÍ gerði það síðast þegar hann heimsótti okkur á 75 ára afmæli UMF Sindra í desember síðastliðnum.

Gervigras, sagan öll

Þegar umræðan um það hvort setja skyldi gervigras á aðalleikvang Sindravalla eða hafa á honum gras, eins og ákveðið var að gera á sínum tíma, var ég og er enn á þeirri skoðun að þetta hafi verið rétta ákvörðunin. Það eru nokkur atriði sem Valdemar þótti ekki þörf á að nefna en réðu þó miklu um að þessi niðurstaða varð raunin og man ég ekki betur að hann væri sammála mér ef þær væntingar gætu gengið eftir.

1. Gras hér á Hornafirði er oft tilbúið til notkunar 2 vikum fyrr en víðast hvar annarstaðar á landinu, og hægt að nota það lengur.

2. Flestir fótboltamenn sem ég talaði við í aðdraganda þessarar ákvörðunar voru sammála um að fótbolti á grasi væri "ekta" og var mér sagt af þjálfara hjá Stjörnunni þegar ég fór með 3. flokk kvenna í úrslit þangað að þeirra leikmenn vildu helst ekki æfa á gervigrasinu sem er á aðalvellinum hjá þeim.

3. FH er með 1/2 gervigrasvöll eins og við erum að fá, það er reyndar yfirbyggt, en samt sem áður duga þeim þessir fermetrar í 95% tilfella til æfinga að sögn þjálfara og forsvarsmanna FH.

4. Auðvitað er það svo rúsínan í pylsuendanum að við getum byggt yfir 1/2 völl en ekki heilan og við ætluðum að vera búin að því. Hrunið og skipulagsmál komu í veg fyrir það, en ekki ætla ég að fara að benda á ákveðna flokka eða persónur. Þetta lesa menn bar um í rannsóknarskýrslu Alþingis. Það verður því miður að bíða í nokkur ár eftir yfirbyggðum íþróttavelli en sá gervigrasvöllur sem nú er í byggingu er í raun aðeins fyrsta skrefið á þeirri vegferð.

5. Uppbygging Sindravalla getur ekki miðast við þarfir knattspyrnunnar eingöngu þrátt fyrir að stærsti einstaki hópur iðkenda stundi þá íþrótt.  Uppbygging Sindravalla í þeirri mynd sem við sjáum í dag hefur hleypt nýju blóði í frjálsíþróttastarf í héraðinu sem er mikilvægt til að auka fjölbreytni og möguleika í íþróttum.  Með gervigrasi á aðalvelli Sindra hefði verið örðugra að skipuleggja frjálsíþróttamót, sérstaklega vegna kastgreina.

Stjórn Sindra, vallarstjórn

Ég sit núna í vallarstjórn fyrir hönd Ungmennafélagsins Sindra. Það gerði ég ekki í upphafi heldur starfsmaður félagsins, sem er eins og allir vita Valdemar. Ég er hinsvegar í stjórn félagsins en ekki Valdemar og þar af leiðandi getur hann ekki tjáð sig fyrir hönd stjórnar, en það get ég allavega út frá mínu sjónarhorni. Ég kannast ekki við að vera að lenda í töluverðu þrasi við starfsmenn sveitafélagsins vegna notkunar á Sindravöllum. Það var einhver núningur innan vallarstjórnar til að byrja með en þau mál voru leyst í miklu bróðerni og fóru allir sáttir frá því borði.  Starfsmenn sveitafélagsins sem sjá um íþróttamannvirki hafa verið boðnir og búnir að koma til móts við okkar þarfir, hvort sem það er á Sindravöllum, íþróttahúsi eða í Sundlaug.  Auðvitað er stundum meiningarmunur um sumt en öll vandamál hafa verið leyst.

Forvarnarmál 

Í þessum málaflokki getur ungmennafélagið ekki skorast undan ábyrgð og ekki ætla ég að gera það.  Þegar við hjá Sindra gerðum samning við sveitafélagið um aukinn styrk til félagsins áttum við að bæta í hvað forvarnarmál varðar. Betur má ef duga skal.  Það verður  að segjast eins er að við, stjórnin og framkvæmdastjórinn Valdemar, höfum ekki staðið okkur nógu vel hvað það varðar og var það samþykkt á aðalfundi í apríl að herða róðurinn í þessum málaflokki.

Setjum X við B á kjördag.     

Ásgrímur Ingólfsson, fjórði maður á lista Framsóknar

Senda grein

Framsókn

Ferðasjóður, Sindravellir og forvarnarmál

17.5.2010 Framsókn

Þetta vefsvæði byggir á Eplica