Framsókn
Ásgerður K. Gylfadóttir
Ásgerður K. Gylfadóttir
Skipar 2. sæti á lista Framsóknarmanna

Ágæti kjósandi!

Framboð Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra hefur valið sér fjögur orð sem sem einkennisorð í aðdraganda kosninganna sem verða 29. maí n.k. Það eru VELFERÐ, ATHAFNIR, UPPLIFUN OG LÍFSGÆÐI.

Þessi orð eru kjarninn í því sem við viljum standa fyrir næstu fjögur árin. Á lista okkar eru reynslumiklir einstaklingar sem unnið hafa að hag sveitarfélagsins og íbúa þess mörg undanfarin ár og einstaklingar eins og ég sem eru að koma nýir að sveitarstjórnarmálum.

VELFERÐ viljum við standa vörð um með því að verja það þjónustustig sem við höfum hér í sveitarfélaginu á sviði heilbrigðis- öldrunar- og fötlunarmála.

Sveitarfélagið hefur rekið bæði heilbrigðisstofnunina og málefni fatlaðra frá tíma reynslusveitarfélags árið 1996 og gengið vel. Mikil þróun hefur verið í þessum málaflokkum með hagsmuni þjónustuþega að leiðarljósi. Leitast er við að tryggja sjálfstæða búsetu sem lengst með heimilishjálp, heimahjúkrun, heimsendum mat og dagvistum aldraðra og fatlaðra. Einnig er oft mikill stuðningur í hvíldarinnlögnum á hjúkrunar- og sjúkradeild.

Brýnt er að gerður verði þjónustusamningur um rekstur HSSA en í dag er stofnunin rekin samkvæmt samningi sem gerður var 2003 en rann út 2006. Markmið okkar er að viðhalda því þjónustustigi sem er í dag þar sem grunnþjónusta er í forgangi. Einnig er það okkar stefna að halda málefnum fatlaðra í umsjón sveitarfélagsins við flutning þeirra verkefna á landsvísu til sveitarfélaga almennt og að ávallt verði leitast við að mæta þeirri þjónustuþörf sem upp kann að koma í málefnum sjúkra, aldraðra og fatlaðra.

Málefni grunnskólans hafa tekið miklum breytingum á undanförnum árum með sameiningu skólanna í Grunnskóla Hornafjarðar og flutning skólahalds út á Höfn. Einnig hafa orðið breytingar á leikskólum með ákvörðun um tvo sjálfstæða skóla sem reknir eru eftir sitt hvorri stefnunni. Við viljum að þessum breytingum verði fylgt eftir og starfsemi leik- og grunnskóla styrkt enn frekar. Við teljum ekki tímabært að fara í neinar breytingar á fyrirkomulagi leikskólanna, gefa þurfi starfinu tíma til að þroskast áður en farið verður í endurmat á þeim breytingum sem þar voru gerðar.

Velferð æskunnar er okkur ofarlega í huga. Á síðasta kjörtímabili var mikil áhersla á uppbyggingu íþróttamannvirkja og það er vel. Ásýnd bæjarins hefur breyst með þessari uppbyggingu og þarf að huga vel að viðhaldi og umgengni. Það er ekki nóg að eiga fínar myndir frá opnunarhátíðum við verðum að virða það sem gert hefur verið með því að fara vel með og bregðast við augljósum vanköntum t.d. aðgengi að buslulaug svo eitthvað sé til tekið.

En æskan okkar er margbreytileg eins og aðrir aldurshópar. Ýmsar ábendingar hafa komið frá unga fólkinu um t.d. stuðning við ungt tónlistarfólk, æfingaraðstöðu fyrir hljómsveitir og annað slíkt.

Framboð framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra vill efla menningar- lista- og tómstundastarf í sveitarfélaginu með áherslu á ungt fólk og erlenda íbúa. Menningarmiðstöðin hefur verið í fararbroddi á þessu sviði sem vera ber og viljum við styðja við starfsemi hennar.

Forvarnarmálin snúa beint að velferð fjölskyldna í sveitarfélaginu. Við viljum taka á þeim málum á breiðum grundvelli með aðkomu íbúa. Hér undir fellur lýðheilsa íbúa, öryggismál, áfengis-, vímuefnaforvarnir. Kynfræðsla, hjálmanotkun, hraðakstur og svo ótal margt fleira.

ATHAFNIR- Öflugt atvinnulíf.

Við viljum vinna áfram að þróunnar- rannsókna- og samstarfsverkefnum sem stofnað hefur verið til.

Við viljum vinna að heildstæðri markaðs- og kynningaráætlun fyrir sveitarfélagið með það að markmiði að einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir sjái sér hag í að flytja hingað starfsemi sína eða hluta hennar.

Við viljum skoða hvernig auka megi framboð á íbúðarhúsnæði á frjálsum leigumarkaði. Í dag stendur það sveitarfélaginu að vissu leyti fyrir þrifum hver erfitt er að fá húsnæði á staðnum sé fólk ekki tilbúið að kaupa sér húsnæði.

Við viljum kanna kosti þess að ráðast í tengibyggingu milli íþróttahúss og sundlaugar.

UPPLIFUN – sveitarfélagið Hornafjörður er góður staður að búa á. Fjölskylduvænn og fallegur. Ferðaþjónustan hefur verið í mikilli uppbyggingu og sókn. Heimamarkaðsbúðin og öll sú gróska sem er í kringum matvælaframleiðslu á staðnum, listamennirnir í leir, tréi og ull svo eitthvað sé nefnt. Bjóða okkur og gestum okkar að upplifa sveitarfélagið og gæði þess með öllum skynfærum.

Fuglasöngur, fjallasýn, lopapeysa, lakkríslykt og humarbragð. Stórkostleg upplifum.

Eflum lífsgæðin með því að verja eins og kostur er hag fjölskyldna og fyrirtækja í sveitarfélaginu - merktu X við B á kjördag.

Ásgerður K. Gylfadóttir  2. sæti á lista Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra.

Senda grein

Framsókn

Ágæti kjósandi!

20.5.2010 Framsókn

Þetta vefsvæði byggir á Eplica