Sjálfstæðisflokkur
Maríanna Jónsdóttir
Maríanna Jónsdóttir

Umgengni í sátt við náttúruna !

Ég er fædd 7. ágúst 1979 og er uppalin á Jaðri í Suðursveit. Eftir grunnskólanám lá leiðin í Framhaldskólann í Austur Skaftafellssýslu, útskrifaðist þaðan vorið 1999. Um haustið sama ár fór ég að vinna á leikskólanum Lönguhólum og heillaðist mjög að því starfi. Ég fór í fjarnám frá Háskólanum á Akureyri og útskrifaðist þaðan vorið 2004 með bed í leikskólafræðum.

Ég er félagslynd og hef áhuga á söng og leiklist og hef tekið þátt í nokkrum sýningum með Hornfirska skemmtifélaginu. Kórastarf hefur skipað stóran sess í mínu lífi. Hef sungið með kirkjukór Suðursveitar og Mýra, Kvennakór Hornafjarðar, og Samkór Hornafjarðar. Ég hef lokið fyrsta stigi í klassískum söng. Ég hef setið fyrir hönd starfsmanna í leikskóla á skólanefndarfundum, komið að skipulagi skólamálaþings, vinnu varðandi lýðheilsumál sveitarfélagsins. Ég er hugmyndarík, kraftmikil og ákveðin.

Samvinna
Ég ólst upp í  bændasamfélagi sem er einskonar nýsköpunarsamfélag ef svo má að orði komast. Bændur þurfa að vera útsjónasamir og finna út hvernig má reka búskapinn á hagkvæman máta. Samvinna tíðkast í minni sveit og það er einmitt málið að stundum er verið að leita of langt í stað þess að leita til þeirra sem eru manni næstir. Við eigum góðan mannauð í þessu samfélagi og notum hann fyrst til að leita til áður en við förum annað. Auðvitað er gott að fá stundum álit annars staðar frá en gleymum ekki fólkinu í samfélaginu okkar. Við erum öll mikilvæg og höfum ólíkar skoðanir og allir skoðanir eiga að vera virtar. Gott er að skoða hvað er að gerast í nágrannasamfélugum en ekki endilegt að við gerum það sama og þau heldur bætum við einhverju við eða gerum aðeins öðruvísi því þannig þéttum við samfélagið. Samvinna...samkeppni... erum við ekki einn stór klasi, það er okkur mjög mikilvægt að geta unnið saman en verið jafnframt í samkeppni. Við búum í litlu samfélagi og þurfum að standa saman og vinna saman ekki hver í sínu horni heldur hjálpast að.

Hjólreiðar vistvænn ferðamáti
Þegar maður lítur um þá er það bíllinn sem er farartæki númer eitt. Er ekki komin tími til að gera ráð fyrir hjólreiðafólki í bænum…það er komið að því að standa við það sem var sagt með sameiningunni að leggja gangstíg/hjólreiðarstíg inn í Nes. Hjólreiðar eru sjálfbær samgöngumáti. Kostnaður við hjólreiðar er lítill ef hann er borinn saman við rekstur einkabílsins og svo ég tali nú ekki um heilsusamlegra.

Mikil aðsókn er í gönguferðir í sýslunni; því tel ég mikilvægt að stika leiðir þannig að það sé ekki verið að skemma landið heldur ganga eftir sama slóðanum. Einnig að setja upp skilti til fræðslu um svæðið.

Græn svæði
Það sem ennfremur skiptir verulegu máli í skipulagi eru opin rými og svæði. Að hafa græn svæði í bænum er mikilvægt og gefur bænum vissan rómantískan blæ og hlýlegheit og einnig eru þetta útivistarsvæði bæjarins.  Ég vil hreinna  og snyrtilegra bæjarfélag. Það vantar fleiri ruslafötur í bæinn og að það sé borin virðing fyrir því sem er gert að ruslatunnurnar séu ekki sprengdar jafn óðum og þær eru settar upp. Við eigum öll að hugsa hvernig bæ vil ég búa í ? Það er ekki á einhverra fárra að halda bænum fallegum. Við eigum öll að taka þátt í því og sinna því af því við viljum það.

Ég tel Hornafjörð hafa margt upp á að bjóða sem gott samfélag svo ég tali nú ekki um náttúrufegurðina sem við höfum. Það er ekkert sjálfsagt að hafa svona náttúrufegurð en við verðum að hlúa vel að landinu okkar og hafa það í huga að öllum er skylt að ganga vel um náttúru landsins

Með kveðju Maríanna Jónsdóttir frambjóðandi á lista Sjálfstæðisflokksins.
  
Senda grein

Sjálfstæðisflokkur

Umgengni í sátt við náttúruna !

12.5.2010 Sjálfstæðisflokkur

Þetta vefsvæði byggir á Eplica