Sjálfstæðisflokkur
Heiðskýrt og flott veður á Höfn
Heiðskýrt og flott veður

Besti kosturinn

Næstkomandi laugardag verður kosið til sveitarstjórnar. Eflaust spyrja margir af hverju á að setja X við D.

Heimilin
Verkefni næstu bæjarstjórnar eru ærin. Standa þarf vörð um heimilin,  gera kjör þeirra og afkomu sem besta. Traust fjármálastjórn er lykilatrið að öflugri þjónustu við íbúana. Undirstaða þess er að vernda af fremsta megni þau störf sem fyrir eru í samfélaginu sem og að leggja grunn að nýjum tækifærum. Bæjarfulltrúar þurfa að hafa til að bera víðsýni til að nýta alla möguleika sem fyrir hendi eru.

Atvinnulífið
Meðal verkefna bæjarstjórnar er huga að þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og að skapa skilyrði fyrir atvinnulífið. Einnig  er mikilvægt hlutverk hennar að gæta hagsmuna svæðisins gangvart hinu opinbera og beita þrýstingi í mikilvægum málum fyrir samfélagið.   Hugmyndir um breytingar á kvótakerfi hafa skapað óvissu og óróleika í greininni. Allar fyrirhugaðar fjárfestingar og framþróun í veiðum og vinnslu hafa stöðvast vegna þessarar óvissu. Það verður að vera skýlaus krafa okkar samfélags að ekki verði farið í  illa ígrundaðar breytinga á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi.

Þjónustan
Barnafjölskyldur þurfa að geta gengið að samfelldri þjónustu. Gæsluúrræði yfir sumartíma verði, að útisvæði annars leikskólans verði opið sem gæsluvöllur á lokunartíma leikskólanna. Fara þarf yfir skipan skólamála  á öllu skólastigum. Forvarnarmál þurfa að skipa stærri sess í hugum þeirra sem vinna með börnum og unglingum. Styðja þarf við klúbba og tómstundarstarf ungmenna. Ungt fólk þarf að geta fundið áhugverð verkefni til að vinna að, það eflir okkar byggðalag.

Tækifæri
 Vatnajökulsþjóðgarður felur í sér tækifæri fyrir atvinnulíf og íbúa ef rétt er á haldið. Bæta þarf aðgengi að náttúrunni með útivist í huga. Við viljum halda áfram uppbyggingu göngustíga, bæta merkingar og fjölga fræðsluskiltum. Flugvöllurinn þarf að geta tekið á móti minni farþegaflugvélum erlendis frá, sem gagnast bæði ferðaþjónustu og íbúum. Við þurfum að þrýsta á öflugri löggæslu. Umferðaröryggi og öryggi ferðamanna í náttúrunni eru mikilvæg og því þurfa viðbragðaðilar svo sem lögregla og björgunarsveitir að vera í stakk búin til að mæta fjölgun ferðamanna.

Verkefnin
Við þurfum að ná nýjum þjónustusamningi við ríkið um heilbrigðis og öldrunarmál.  Bæta þarf aðstöðu á hjúkrunarheimilinu meðal annars með því að byggja kapellu og líkhús. Við viljum vinna að búsetuúrræðum fyrir eldriborgara samkvæmt Eden hugmyndinni. Við viljum að Sveitarfélagið Hornafjörður hafi áfram forræði yfir málefni fatlaðra. Taka þarf næstu skref í uppbyggingu íþróttamannvirkja með byggingu milli sundlaugar og íþróttarhús með það að markmiði að bæta aðstöðu og hagræða í rekstri. Við viljum að þar rúmist fjölbreytt þjónusta á svið  heilsuræktar.

Ágæti kjósandi.  Á lista sjálfstæðisflokksins er fólk með slagkraft og skýra framtíðarsýn. Fólk úr öllum stéttum samfélagsins. Með góðum stuðningi vinnum við betur fyrir þig og náum árangri.  Settu x við D á kjördag.

Björn Ingi Jónsson, oddviti sjálfstæðismanna.

Senda grein

Sjálfstæðisflokkur

Besti kosturinn

26.5.2010 Sjálfstæðisflokkur

Þetta vefsvæði byggir á Eplica