Frambjóðendur

Frambjóðendur

1. sæti
Björn Ingi Jónsson
   (netfang)

Björn Ingi JónssonBjörn Ingi Jónsson er menntaður raf- og rekstrariðnfræðingur og hefur starfað sem bæjarfulltrúi síðan 2006. Kvæntur Hrafnhildi Magnúsdóttur og eiga þau samtals fjögur börn.  Á yfirstandandi kjörtímabili hefur Björn Ingi starfað í ýmsum nefndum á vegum sveitarfélagsins, auk þess er hann er formaður samgöngunefndar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og varaformaður svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs á suðaustursvæði. Björn Ingi hefur áhuga á atvinnumálum, skipulagsmálum og að gera sveitarfélagið okkar eftirsóknarvert þegar kemur að vali fólks á búsetu.

 

2.sæti
Guðrún Ása Jóhannsdóttir
(netfang)

Guðrún Ása JóhannsdóttirGuðrún Ása Jóhannsdóttir er grunnskólakennari að mennt en hefur starfað sem leikskólakennari undanfarin ár.
Guðrún Ása er í sambúð með Óla Stefáni Flóventssyni og eiga þau einn son.
Guðrún Ása hefur starfað með Ungmennafélaginu Sindra og þá sérstaklega hjá knattspyrnudeildinni en þar hefur hún bæði spilað og þjálfað yngri flokka félagsins.
Hún hefur áhuga á mennta-, skóla-, æskulýðs og íþróttamálum.

3. sæti
Valdemar Einarsson 
(netfang)

Valdemar EinarssonValdemar Einarsson er framkvæmdastjóri Sindra. Hann hefur starfað mikið á sviði tómstunda og æskulýðsmála t.d sem formaður knattspyrnudeildar Sindra og Bridgefélags Hornafjarðar. Var verkefnisstjóri Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið var á Höfn 2007. Valdemar hefur komið að Humarhátíð með einum eða öðrum hætti frá 1999 og síðustu ár verið framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Hann hefur setið í nefndum t.d. æskulýðs og tómstundarráði, umhverfisnefnd og nú síðast í hafnarstjórn. Stundaði sjómennsku í tæp 30 ár. Áhugamál eru atvinnu, menninga og tómstundamál og almenn velferð Sveitafélagsins Hornafjörður

4.sæti
Lovísa Rósa Bjarnadóttir 
(netfang)

Lovísa Rósa BjarnadóttirLovísa Rósa Bjarnadóttir er með diploma í fjármálum og stjórnun. Hún er gift Jóni Kjartanssyni og eiga þau tvo syni, saman reka þau jarðvinnuverktakafyrirtæki. Lovísa er formaður Kvennfélagsins Vöku, situr í stjórn sunddeildar Sindra svo eitthvað sé nefnt. Hún hefur áhuga á atvinnu-, umhverfis- og skólamálum.

5.sæti
Grétar Már Þorkelsson

Grétar Már ÞorkelssonGrétar Már Þorkelsson er ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands. Hann er giftur Nönnu Dóru Ragnarsdóttur og eiga þau fjögur börn. Hann vinnur einnig hjá Landgræðslu ríkisins og starfað sem héraðslögreglumaður frá 2002. Grétar hefur setið í stjórn Ungmennefélagsins Mána og í stjórn Karlakórsins Jökuls og verið varamaður í menningarmálanefnd. Grétar Már hefur mestan áhuga á atvinnumálum, tómstunda-, og æskulýðsmálum.

6.sæti
Halldóra Guðmundsdóttir

Halldóra Katrín GuðmundsdóttirHalldóra Katrín Guðmunsdóttir er grunnskólakennari að mennt og starfar við Grunnskóla Hornafjarðar. Hún er gift Benedikti Gunnarssyni og eiga þau tvö börn. Halldóra var varamaður í bæjarstjórn og sat í nefndum á vegum bæjarins 1998-2002. Hún hefur starfað með Ungmennafélaginu Sindra undanfarin ár bæði hjá knattspyrnudeildinni og í aðalstjórn, er varamaður í sóknarnefnd og gegnir formennsku í Sjálfstæðisfélagi Austur-Skaftafellssýslu. Áhugasvið er að íbúar sveitatarfélagsins búi við sem bestan kost bæði hvað varðar atvinnu,  umhverfi og þjónustu.

7.sæti
Björn Þórarinn Birgisson

8.sæti
Herdís Waage Ingólfsdóttir

9.sæti
Jóhannes Óðinsson

10. sæti
Maríanna Jónsdóttir

11.sæti
Unnsteinn Guðmundsson

12. sæti
Laufey Guðmundsóttir

13. sæti
Sigurður Guðmundsson

14. sæti
Halldóra Bergljót Jónsdóttir







 

Senda grein

Frambjóðendur


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica