Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga – stefnumál og fleira.
Síðastliðinn sunnudag hélt Sjálfstæðisflokkurinn í Austur Skaftafellssýslu fund á Kaffihorninu. Tilgangur þessa fundar var að kynna frambjóðendur og greina frá helstu áherslum í undirbúningi fyrir sveitarstjórnarkosningar.
Á þriðjudag var fyrsti fundur í stefnumálum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Þar voru tekin fyrir menningar-, æskulýðs- og tómstundamál. Mæting var góð og málefnin til umfjöllunar mörg. Miðvikudag var fjallað um bygginga, skipulags og samgöngumál og í kvöld fimmtudag verða skólamálin á dagskrá og hefst fundurinn klukkan 20 í Sjallanum. Við Sjálfstæðismenn leggjum áherslu á að sem flestir komi að stefnumálavinnu til að stefnuskrá okkar komi sem best út. Fundirnir verða sex talsins og þegar þeim lýkur munu frambjóðendur vinna að því að koma skránni í endanlegt form áður en hún verður kynnt í lok mánaðarins. Eftir þá kynningu verður samt sem áður hægt að koma málefnum og tillögum að bættri og betri stefnuskrá áfram til frambjóðenda flokksins.
Nánari upplýsingar um stefnumálafundina og viðburði á vegum flokksins má sjá hér á heimasíðu flokksins www.rikivatnajokuls.is/xd.


