Stefnumálin, kynningar og starfið framundan hjá Sjálfstæðisflokknum
Stefnumálin, kynningar og starfið framundan hjá Sjálfstæðisflokknum
Um miðjan mánuðinn hófust stefnumálafundir hjá Sjálfstæðisflokknum. Fundirnir voru alls sex og lauk þeim síðasta í gærkvöldi. Þetta voru vel sóttir og málefnalegir fundir þar sem margar góðar áherslur komu fram. Frambjóðendur setjast nú niður með þau málefni sem var rætt og koma með hugmynd að málefnalista sem Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að stefna að eftir kosningar. Allar ábendingar til frambjóðenda eru velkomnar og þá er bara að setja sig í samband við frambjóðendur eða senda fyrirspurn til frambjóðenda á netfangið xd@hfn.is .
Á lista Sjálfstæðisflokksins eru nokkur ný andlit og því leggjum við áherslu á það að kynna þá frambjóðendur vel. Breiddin er góð þarna eru meðal annara; kennari, búfræðingur, rafiðnaðarfræðingur, trillukarl, leikskólakennari, nemi, verslunarstjóri, ferðaþjónustubóndi og framkvæmdarstjórar, allt hörkuduglegir og efnilegir einstaklingar reiðubúnir til að starfa fyrir samfélagið okkar.
Kosningaskrifstofan opnar 8.maí með pompi og prakt en það verður auglýst nánar þegar nær dregur. Þann dag verður einnig vinnudagur í Sjallanum, en skipta þarf um þakkant, bera í pallinn og fleira. Semsagt líf og fjör hjá okkur í Sjálfstæðisflokknum og skemmtileg kosningavinna framundan, þar sem við setjum markið hátt og stefnum að því að ná aftur inn þriðja manni í bæjarstjórn.
Bestu kveðjur og gleðilegt sumar !
Sjálfstæðisfélag
Austur Skaftafellssýslu


