Léttar kynningar á frambjóðendum xD
Nú er allt á fullu hjá Skaftfellingi, félagi ungra sjálfstæðismanna á Höfn í Hornfafirði í aðdraganda kosninga. Síðastliðinn föstudag hélt félagið spurningakeppni, eða svokallað ,,Pubquiz" á Kaffihorninu og heppnaðist það afar vel. Á föstudaginn næstkomandi verður svo haldið hið árlega Grillkvöld í Pakkhúsinu og vonumst við að sem flestir sjái sér fært um að mæta.
Skaftfellingur hefur einnig verið að vinna að léttum kynningum á frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar og á að birta þær á Facebook síðu félagsins koll af kolli núna næstu daga.
Hægt nálgast þessar kynningar á facebook , sjá hér.


