Gagnaver í bland
Ný atvinnutækifæri eru vandfundin á þeim erfiðu tímum sem við lifum og engar galdralausnir til. Mikið hefur verið rætt og ritað um gagnaver og sitt sýnst hverjum um ágæti þeirra.
Grunnurinn
Atvinna er eitt af því mikilvægasta sem hvert samfélag byggir á og fjölbreytni er lykillinn að því að virkja þann mannauð sem býr á hverju atvinnusvæði. Fjölbreytni næst ekki einungis fram með því að horfa eftir einhverju nýju, heldur einnig að halda því sem er fyrir og því er mikilvægt að standa vörð um grunn atvinnuvegina. Þeir verða að búa við gott og öruggt rekstrarumhverfi til að þróun geti átt sér stað, sem svo aftur gefur af sér meiri fjölbreytileika. Við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs skapast ný tækifæri fyrir svæðið og þá sérstaklega ferðaþjónustuna. Nálægðin við jökulinn og aðgengi að honum hefði samt átt að gefa okkur stærri hlutdeild í stofnuninni en raun varð á. Landbúnaður á í vök að verjast með að halda í horfinu. Íslensk náttúra hefur um aldir verið stríðandi afl og baráttan við hana erfið svo sem nýleg dæmi sanna. Aðild að Evrópusambandinu yrði til að gera stöðu þessarar rótgrónu atvinnugreinar enn erfiðari. Við megum heldur ekki taka því sem sjálfgefnum hlut að sjávarútvegurinn haldi sinni rekstrarstöðu. Allar hugmyndir um fyrningaleið eru mjög slæmar fyrir okkur og verðum við að standa þétt saman greininni til varnar. Bæjarstjórn hefur mikilvægu hlutverki að gegna þegar kemur að því að verjast gegn illa grunduðum ákvörðunum hjá ríkisvaldinu.
Fleiri möguleikar
Ný atvinnutækifæri eru vandfundin á þeim erfiðu tímum sem við lifum og engar galdralausnir til. Mikið hefur verið rætt og ritað um gagnaver og sitt sýnst hverjum um ágæti þeirra. Misskilnings hefur gætt um verðmæti þeirra starfa sem gagnaver gæti skapað. Undanfarna 18 mánuði hefur verið í gangi vinna meðal áhugahóps hér á Hornafirði um möguleika á að koma upp gagnaveri. Þessa vinnu þekki ég vel þar sem ég tilheyri þeim hópi sem að þessu stendur. Búið er að undirrita viljayfirlýsingu við Orkusöluna um allt að 5 MW til reksturs gagnavers einnig er til viljayfirlýsing við Farice um gagnatengingar til og frá Hornafirði. Auk þess hefur vilyrði verið gefið um 50.000 fermetra lóð hjá Sveitarfélaginu. Fyrirlyggjandi eru drög að teikningum húnsæðis sem er 20.000 fermertrar, sem er stækkanlegt í 5.000 fermetra þrepum einnig hefur Landsnet staðfest möguleika á flutningi á 20 MW inn á svæðið án frekari breytinga á flutningskerfinu. Samhliða þessari vinnu hefur hópurinn sem að þessu stendur setið ráðstefnur í London, Boston og New York til að kynna fyrir husanlegum viðskiptavinum hverjir möguleikarnir hér eru. Þær stærðir sem hér eru viðraðar myndu skapa allt að 15 störf sem eru aðallega iðnaðar- og tæknistörf, sólahrings gæsla er einnig nauðsynleg við slík ver. Auk þessa þurfa viðskiptavinir gagnavera að koma til að skoða búnað og innleiða nýungar, en þessir aðilar þurfa gistingu og þjónustu, þannig að afleidd störf í tengslum við slíkan vinnustað gætu verið umtalsverð.
Enn fleiri möguleikar
Hugmyndir hafa verið í gangi um framleiðslu á vatni til lækninga en allt slíkt vatn er flutt inn til landsins. Í slíkri verksmiðju yrðu tvær vélasamstæður sem taka inn á sig vatn, dauðhreinsa það og pakka í þar til gerðar pakkningar. Fara þarf í markvissar athuganir á hvað þarf til að slík verksmiðja gæti verið staðsett í sveitarfélaginu og tryggja fjárfesta til að koma henni á laggirnar. Nú þegar hefur samningur verið gerður við Rolf Johansen & Company RFC um möguleika á uppbyggingu vatns- átöppunarverksmiðju og í tengslum við það hafa staðið yfir mælingar og rannsóknir á vatni úr Grjótbrúarlind. Þær rannsóknir lofa góðu og er spurning hvort framleiðsla lækningavatns sé hugsanleg með átöppun á venjulegu vatni.
Uppbygging í tengslum við það sem að framan er talið yrði mjög atvinnuskapandi þó tímabundið sé.



