Samfylkingin
Samfylkingin
Samfylkingin
Matta búin með sitt hverfi
Mynd 2 af 2
1 2

Stefnuskrárgangan mikla

Stærsta verkefni allra framboða og frambjóðenda fyrir hverjar kosningar er að koma stefnumálum sínum á framfæri við kjósendur. Ef kjósendur vita ekki fyrir hvað framboðin standa – af hverju ættu þeir þá að kjósa þau.

Frambjóðendur Samfylkingarinnar vinna nú hörðum höndum að því að kynna stefnumál framboðsins fyrir almenningi. Þeir ganga hús úr húsi þessa dagana og afhenda kjósendum eintak af stefnuskrá flokksins. Þeim hefur verið afar vel tekið og greinilegt er að fólk hefur mikinn áhuga á málefnum samfélagsins. Með þessu vill Samfylkingin koma stefnumálum sínum á framfæri við kjósendur milliliðalaust.

Við hvetjum kjósendur til þess að kynna sér stefnumálin vel áður en þeir ganga inn í kjörklefann 29. maí nk. Samfylkingin á Hornafirði leggur verk sín og stefnuskrá stolt í dóm kjósenda.

Frambjóðendur Samfylkingarinnar

Senda grein

Samfylkingin

Stefnuskrárgangan mikla

20.5.2010 Samfylkingin

Þetta vefsvæði byggir á Eplica