Þróttmikið samfélag
Þann 29. maí nk. verður gengið að kjörborði í sveitarstjórnarkosningum. Þá ákveða kjósendur hverjum þeir treysta best til að stýra næstu fjögur árin.
Samfylkingin býður nú fram í annað sinn öflugan lista með fólk sem hefur jafnaðarstefnuna að leiðarljósi. Aðstæður í íslensku samfélagi nú um stundir eru þannig að mjög er kallað eftir stjórnarháttum sem bera jöfnuð fyrir brjósti. Mikilvægt er því að kjörnir fulltrúar, sem hafa það hlutverk að sýsla með sameiginlega sjóði íbúanna, átti sig á því að nú sem aldrei fyrr verði að nýta takmarkaða fjármuni með skynsamlegum hætti.
Öflugt menningarlíf
Eitt af því sem gerir samfélag auðugt er öflugt menningarlíf og svo er hér. Á yfirstandandi kjörtímabili var unnin ný og metnaðarfull stefna í menningarmálum fyrir sveitarfélagið. Hún hefur myndað rammann um hið þróttmikla menningarstarf sem unnið er á vegum sveitarfélagsins. En sveitarfélagið er síður en svo eitt að verki þegar kemur að menningarmálum í samfélaginu. Þar leggja margir einstaklingar og félagasamtök hönd á plóg. Í samstarfi milli einstaklinga, félagasamtaka, stofnana og fyrirtækja er unnið svo vel að eftir er tekið á landsvísu. Listamenn og þá ekki síst ungir listamenn hafa fengið stuðning frá sveitarfélaginu með vinnuaðstöðu m.a. í Miklagarði. Gaman væri ef sú starfsemi sem nú lítur dagsins ljós við höfnina sé vísbending um það sem koma skal í þessum merkilegu húsum okkar Hornfirðinga.
Kyrrstaða ekki til
Austur-Skaftafellssýsla hefur fóstrað marga listamenn sem sumir hverjir eru kunnir á heimsvísu. Einn þeirra er Svavar Guðnason, en margir myndlistaunnendur koma hingað á ári hverju til þess að berja verk og æskuslóðir þessa merka frumkvöðuls á sviði myndlistar augum. Sveitarfélaginu barst höfðingleg gjöf á síðasta ári þegar erfingjar Ástu Eiríksdóttur ánöfnuðu listaverkum úr dánarbúi hennar og Svavars til sveitarfélagsins. Hundrað ára ártíð Svavars var svo í nóvember sl. og það varð m.a. kveikja þess að unnið er að sýningarsal í ráðhúsinu svo sýna megi Svavari Guðnasyni og verkum hans verðskuldaðan sóma.
Höfn varð 110 ára á kjörtímabilinu. Af því tilefni voru sett upp fræðsluskilti víðsvegar um bæinn og innifelur hvert þeirra helstu viðburði hvers áratugar sem liðinn er frá því staðurinn byggðist upp. Þá myndskreyttu skólabörn vegginn við Brautarholt af miklu listfengi og þar er vettvangur til að nýir listamenn framtíðarinnar getir spreytt sig því alltaf má skipta um mynd. Hér er einungis tæpt á fáeinum atriðum sem sýna hvað mannlífið er fjölbreytilegt og kyrrstaða ekki til.
Þjóðahátíð
Þótt sannleikskorn felist í því að hollur sé heimafenginn baggi, er einnig mikill fengur í nýjum Íslendingum, sem hér hafa kosið að setjast að. Undanfarin ár hafa þessir sveitungar okkar tekið sig saman og boðið til þjóðahátíðar sem er hreint frábær samkoma. Vera þeirra auðgar samfélagið ásamt dýrmætu vinnuframlagi og þátttöku í daglegu brauðstriti .
Það styttist í vorið og kosningarnar. Nú fá kjósendur valdið og ég trúi að stjórnun sveitarfélagsins undanfarin fjögur ár hafi verið farsæl og fjölskylduvæn. Það er vert að hafa í huga þann 29. maí næstkomandi.
Guðrún Ingimundardóttir
Bæjarfulltrúi og formaður menningar – og tómstundanefndar



