Fræðslumál – kjörtímabil breytinga
Rekstur sveitarfélaga nær yfir stóra og fjölbreytta málaflokka og snertir flest okkar með einhverjum hætti á hverjum degi. Ein mikilvægasta forsenda öflugs starfs í stórum málaflokkum er sátt um fyrirkomulag rekstrarins. Því er nauðsynlegt að allar breytingar í mikilvægum málaflokkum séu vel ígrundaðar og að ákvarðanatökuferlið sé vandað. Fræðslumálin eru dæmi um slíkan málaflokk.
Óhætt er að segja að yfirstandandi kjörtímabil hafi verið tími breytinga í fræðslumálum, sérstaklega hvað varðar grunnskólann en rekstur hans er stærsti einstaki liðurinn í rekstri sveitarfélaga. Þegar kemur að grunnskólanum er því ljóst að þar verður að fara saman metnaðarfullt faglegt starf og hagkvæmur rekstur. Á kjörtímabilinu hafa stór skref verið stigin í rekstri og starfi grunnskólans þar sem faglegur metnaður og hagkvæmni
í rekstri voru leiðarljósin.
Farsæl sameining grunnskólans
Lokið var við gerð nýrrar skólastefnu fyrir sveitarfélagið í góðri samvinnu við skólasamfélagið. Á grundvelli þeirrar stefnu voru Nesja -, Hafnar – og Heppuskóli sameinaðir í Grunnskóla Hornafjarðar. Haustið 2008, eftir að sameinaður grunnskóli tók til starfa, ákvað bæjarstjórn að kanna kosti þess að allt skólahald á vegum Grunnskóla Hornafjarðar færi fram á Höfn. Sú athugun leiddi í ljós að það var framkvæmanlegt og fýsilegur kostur. Húsnæði grunnskólans í Nesjum hafði áður verið selt og þar er nú rekin ferðaþjónusta. Flutningur skólahalds úr Nesjaskóla kallaði á miklar endurbætur á húsnæði Hafnarskóla. Ráðist var í þær framkvæmdir á vor – og sumarmánuðum árið 2009 og farið í endurbætur á skólalóð við Hafnarskóla og óhætt er að segja þær hafi heppnast vel.
Sameining – tækifæri til hagræðingar
Sameining grunnskólanna þriggja, sem og flutningur alls skólastarfs á Höfn, skapaði sveitarfélaginu svigrúm til hagræðingar. Hagræðing í yfirstjórn grunnskólans, í skólaakstri og í umsjón fasteigna mun, þegar hún hefur að fullu skilað sér inn í sveitarsjóð, spara sveitarfélaginu um 40 milljónir króna á ári í rekstrarkostnað. Þar með skapast svigrúm til þess að bæta þjónustuna enn frekar við nemendur.
Lykilstofnanir – vönduð ákvarðanataka
Þessar miklu breytingar á starfsemi grunnskólans voru unnar í góðri sátt við skólasamfélagið og margir komu þar að eins og starfsmenn, nemendur og foreldrar. Vert er að minnast þess að samstaða var um sameininguna í bæjarstjórn, sem og ákvörðun um flutning skólahalds, þó bæjarfulltrúa hafi greint á um útfærslu sameiningarinnar. Allt frá upphafi ákváðu bæjarstjórn og skólanefnd að leita allra leiða til þess að tryggja sátt um rekstrarfyrirkomulag þessarar lykilstofnunar í samfélaginu og ein stærsta forsenda sáttar var að sjá til þess að ákvarðatökuferlið væri vandað. Þetta vandaða ferli tryggði frið um miklar breytingar á starfi grunnskólans og er það mikils vert.
Anna María Ríkharðsdóttir
Skipar 5. sæti á lista Samfylkingarinnar og er fulltrúi í skólanefnd



