Samfylkingin
Matthildur Ásmundardóttir
Matthildur Ásmundardóttir

Fjölskyldan - hornsteinn hvers samfélags

Nú líður að kosningum, sem væntanlega fer ekki framhjá Hornfirðingum. Frá miðju yfirstandandi kjörtímabili hef ég hef verið varabæjarfulltrúi ásamt því að hafa gegnt formennsku í æskulýðs- og tómstundaráði sem síðar var að hluta sameinað menningarmálanefnd.
Ég hef einnig setið í félagsmálaráði og í tveimur starfshópum. Öðrum hópnum var falið að fjalla um félagslíf ungs fólks í sveitarfélaginu en hinum hópnum, sem ég veitti formennsku, var falið að móta fjölskyldustefnu sveitarfélagsins. Fjölskyldan skipar stóran sess í umræðum allra þessara nefnda og langar mig að fjalla lítillega um málefni fjölskyldunnar hér.

Fjölskyldan er það dýrmætasta sem við eigum í hverju samfélagi. Í ljósi erfiðra efnahagsaðstæðna er mikilvægt að hlúa vel að fjölskyldum í samfélaginu, m.a. með því að halda kostnaði í lágmarki, þjónustu í hámarki, auka afþreyingarmöguleika fjölskyldunnar og skapa aðstöðu til fjölskyldusamveru. Við gerð fjárhagsáætlana síðustu ár hefur enda meginmarkmið  bæjarstjórnar verið að verja stöðu heimilanna eftir mætti.

Tómstundakort tekin í gagnið

Fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar setti Samfylkingin á Hornfirði fram metnaðarfull markmið um lækkun kostnaðar fjölskyldna við tómstundaiðkun barna og unglinga. Í samræmi við þá stefnuyfirlýsingu var það ein af tillögum starfshóps um fjölskyldustefnu, sem bæjarstjórn samþykkti, að leggja til að tekin yrðu upp tómstundakort að upphæð 10.000 kr. til að niðurgreiða þátttökugjöld barna og unglinga 6 – 18 ára í íþróttum og tómstundum.

Bæjarstjórn samþykkti einnig tillögu starfshópsins þess efnis að gjöld sveitarfélagsins í leikskólum og lengdri viðveru lækkuðu um 10% ásamt því að systkinaafsláttur var aukinn og tengdur á milli skólastiga Tilkoma tómstundakorts, lækkun leikskólagjalda og lækkun gjalda fyrir lengda viðveru eru mikil kjarabót fyrir fjölskyldur sveitarfélagsins og þá sérstaklega fyrir barnmargar fjölskyldur.

Forvarnir og lýðheilsa

Á kjörtímabilinu gerði sveitarfélagið nýjan styrktarsamning við Ungmennafélag Sindra, sem hjálpaði félaginu að hafa starfandi framkvæmdastjóra allt árið. Markmið samningsins var m.a. að fjölga íþróttagreinum og efla lýðheilsu íbúanna. Annað verkefni, sem bæjaryfirvöld hafa unnið að og mun efla lýðheilsu íbúa, er lagning göngustígakerfis meðfram strandlengjunni, sem mun þegar yfir lýkur ná yfir 21 km. Lagning 1. hluta er nú hafin.

Forvarnir eru mikilvægur málaflokkur fyrir allar fjölskyldur og hafa ávallt skipað veglegan sess hjá sveitarfélaginu. Á næsta kjörtímabili mun Samfylkingin vinna að eflingu forvarna í sveitarfélaginu með víðtæku samstarfi stofnana sveitarfélagsins, foreldra, lögregluyfirvalda og allra þeirra sem málið varða.

Stórátak í uppbyggingu íþróttamannvirkja

Gríðarleg uppbygging hefur verið á íþróttamannvirkjum undanfarin ár sem kemur fjölskyldum til góða. Sundlaugin var einstaklega vel heppnuð og aukning í aðsókn að henni  hefur farið fram úr öllum væntingum. Nú státum við af glæsilegri frjálsíþróttaaðstöðu með nýjum íþróttavelli og tartanbraut. Nýtingin á vellinum er mjög góð og þá sérstaklega af hinum almennu borgurum sem stunda ekki skipulagðar íþróttir. Nú styttist í að nýr gervigrasvöllur verði tilbúinn á íþróttasvæðinu og körfuknattleiksvöllur á útisvæðinu við íþróttahúsið.

Fjölskyldumálin hafa skipað veglegan sess hjá bæjarstjórn á því kjörtímabili sem nú er að ljúka en mikilvægt er að svo verði áfram. Stuðningur við Samfylkinguna er ávísun á það.

Matthildur Ásmundardóttir

Varabæjarfulltrúi og skipar 3. sæti á lista samfylkingarinnar

Senda grein

Samfylkingin

Fjölskyldan - hornsteinn hvers samfélags

28.4.2010 Samfylkingin

Þetta vefsvæði byggir á Eplica