Samfylkingin
Berglind og Ragnheiður
Berglind og Ragnheiður

Umhverfismál – okkar hjartans mál

Á undanförnum árum hefur náðst mikill árangur í umhverfismálum í sveitarfélaginu. Nægir í þeim efnum að benda á framfarir í sorpflokkun og endurvinnslu.
Hægt er að mæla þennan árangur á nokkra vegu. Beinn kostnaður af urðun sorps hefur snarlækkað á kjörtímabilinu og líftími urðunarsvæðis sveitarfélagsins hefur lengst svo um munar.

En auðvitað er alltaf hægt að gera betur í þessum málum eins og öðrum. Ábyrgð Sveitarfélagsins Hornafjarðar er ekki síst mikil í þessum efnum vegna nálægðarinnar við Vatnajökulsþjóðgarð. Nauðsynlegt er að vinna áfram í þessum anda og auðvelda öllum íbúum sveitarfélagsins aðgang að endurvinnslunni. Kynningarstarf vegna þessa þarf líka að vera mjög markvisst og samfélagslegur ávinningur á að vera öllum kunnur. Þannig aukast líkur á enn meiri flokkun og endurvinnslu í sveitarfélaginu.

Snyrtimennskan í fyrirrúmi
Snyrtilegur bær er eitthvað sem við viljum öll stefna að. Átak var gert í því að fegra innkomuna í bæinn og heppnaðist sú framkvæmd mjög vel. En mikilvægt er að huga að slíku á fleiri stöðum í sveitarfélaginu. Til þess að sem mestur árangur náist þarf samstillt átak sveitarfélags, fyrirtækja og einstaklinga. Allir bera ábyrgð þegar kemur að því að halda umhverfinu snyrtilegu.

Uppbygging göngu -, hjólreiða – og reiðstíga
Ánægjulegt var að sjá malbikunarflokka að störfum við strandlengjuna á Höfn, þar sem verið var að malbika göngu– og hjólreiðastíg. Nú er lag að halda áfram við gerð göngustíga í sveitarfélaginu, þeir þjóna ekki bara bæjarbúum heldur einnig ferðamönnum og setja skemmtilegan svip á bæinn. Hægt væri að halda áfram með þann göngustíg, sem nú er nýmalbikaður, og láta hann tengjast göngustígakerfinu á Ægissíðu og gaman væri að setja smá útskot með bekkjum og skiltum sem segja frá sögu svæðisins. Einnig þarf að huga að því að tengja betur saman Höfn og Nes með göngu -, hjólreiða – og reiðstígum. Án efa yrði það vinsælt útivistarsvæði. Í sveitarfélaginu eru fjölmargir áningarstaðir, nokkra þeirra mætti taka í gegn, gera meira úr þeim og jafnvel hafa merktar gönguleiðir út frá þeim.

Skipulagsmál taki mið af þörfum fjölskyldunnar
Í öllum skipulagsmálum verður að taka mið af umhverfis – og náttúruverndarsjónarmiðum. Einnig þarf að taka tillit til þarfa fjölskyldunnar og skipuleggja opin svæði með það að markmiði að fjölga tækifærum fjölskyldunnar til útivistar og hreyfingar og fjölga þannig samverustundum fjölskyldunnar. Þannig stuðlum við að fjölskylduvænu samfélagi. Atkvæði greitt Samfylkingunni 29. maí er ávísun á það.

Ragnheiður Sigjónsdóttir
Skipar 8. sæti á lista Samfylkingarinnar

Berglind Steinþórsdóttir
Skipar 10. sæti á lista Samfylkingarinnar

Senda grein

Samfylkingin

Umhverfismál – okkar hjartans mál

19.5.2010 Samfylkingin

Þetta vefsvæði byggir á Eplica