Samfylkingin
Framboð Samfylkingarinnar 2010
Framboð Samfylkingarinnar 2010
Hópmynd tekin út í Óslandi

Skýr skilaboð kjósenda

Sveitarstjórnarkosningar fóru fram í gær. Á Hornafirði vann Framsóknarflokkurinn stórsigur og kjósendur fólu honum stjórn sveitarfélagsins næstu fjögur árin. Samfylkingin tapaði hins vegar miklu fylgi frá síðustu kosningum eða rúmum tíu prósentustigum. Þessir tveir flokkar hafa starfað saman í meirihluta á því kjörtímabili sem nú lýkur. Skilaboð kjósenda til Samfylkingarinnar á Hornafirði eru því mjög skýr. Aðkomu Samfylkingarinnar að meirihlutastarfi á næsta kjörtímabili er hafnað. Samfylkingin hlustar á þessi skilaboð kjósenda. Okkar bíður því nýtt og spennandi hlutverk í bæjarstjórn Hornafjarðar á næsta kjörtímabili – að starfa í minnihluta – og því munum við sinna af krafti og heilindum.

Þakkir og hamingjuóskir

Samfylkingin á Hornafirði vill þakka öllum kjósendum þátttökuna í sveitarstjórnarkosningunum . Þátttaka á Hornafirði var töluvert yfir landsmeðaltali og því ber að fagna. Frambjóðendur Samfylkingarinnar þakka öllum þeim kjósendum sem lögðu leið sín á kjörstað til þess að styðja við bakið á okkur. Stuðningur ykkar er okkur mikilvægur.

Samfylkingin óskar öllum nýkjörnum aðal – og varamönnum í bæjarstjórn til hamingju með kjörið og óskar þeim öllum velfarnaðar í störfum sínum fyrir sveitarfélagið. Framsóknarflokknum óskum við til hamingju með glæsilegan sigur.

Senda grein

Samfylkingin

Skýr skilaboð kjósenda

30.5.2010 Samfylkingin

Þetta vefsvæði byggir á Eplica