Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1229. fundur
18. ágúst 2026 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason formaður
Ingibjörg Sveinsdóttir varaformaður
Reynir Ásgeirsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Umsögn um áform um breytingu á lögum nr.382018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
Málsnúmer 202608033
Áformaðar eru breytingar á gildandi lögum um þjónustu við fatlað fólk. Markmiðið er að bæta lagaframkvæmd og tryggja betur jafnræði og aðgengi fatlaðs fólks að þjónustu og aðstoð sem lögin kveða á um.Óskað var eftir umsögnum hagsmunaaðila inn á samráðsgátt stjórnvalda og rann umsagnarfrestur út þann 16.8.2026. Sviðstjóri velferðarsviðs sendi inn umsögn f.h. sveitarfélagsins og er hún lögð fram til kynningar á fundinum.
Bæjarráð þakkar sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir að hafa frumkvæði að því senda umsögn í málinu og felur honum að fylgja málinu eftir.

Samþykkt samhljóða.
2.
Jarðhitaleit í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201505009
Jarðhiti hefur fundist víða í sveitarfélaginu og vísbendingar eru um jarðhita á fleiri stöðum. Markviss leit og rannsóknir hafa legið niðri um nokkur skeið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.
3.
Tímabundnar umferðaröryggisaðgerðir á hafnarsvæðinu
Málsnúmer 202512003
Lagðar eru fram tvær tillögur að breyttu umferðarskipulagi og útfærslu bílastæða á hafnarsvæðinu. Meginmarkmið tillagnanna er að auka umferðaröryggi gesta og annarra vegfarenda, auk þess að tryggja greiðara umferðarflæði og bæta við skiltum og merkingum á svæðinu.
Lögð er fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa K lista: Gerð er athugasemd við að undir umræðunni hafi setið fulltrúi B lista sem hefur verið skilgreindur af bæjarráði sem hagsmunaaðili í málinu og þar af leiðandi mögulega vanhæfur í meðferð málsins samkvæmt 3. grein stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Lögð er fram svohljóðandi bókun fulltrúa B lista í bæjarráði: Fulltrúi B lista telur sig ekki vanhæfan til meðferðar málsins. Um er að ræða almennt skipulagsmál sem tekur til svæðisins í heild og varðar ekki sérstaka eða verulega hagsmuni félags í eigu fulltrúans umfram aðra aðila á svæðinu. Málið varðar jafnframt ekki grundvallarhagsmuni félagsins með þeim hætti að ástæða sé til að draga óhlutdrægni við meðferð málsins í efa.

Málinu er frestað til næsta fundar.

Samþykkt samhljóða.
4.
Lóðarvilyrði - hleðslustöðvar
Málsnúmer 202606137
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs leggur fram minnisblað varðandi samningsumhverfi í tengslum við lóðir undir hleðslustöðvar.
Bæjarráð þakkar sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs fyrir ítarlegt minnisblað og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram miðað við leið b sem lögð er til í minnisblaðinu í samráði við fjármálastjóra.

Samþykkt samhljóða.
5.
FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ - opið fyrir umsóknir
Málsnúmer 202608031
Lagt er fyrir bæjarráð erindi um þátttöku sveitarfélagsins í FIFA Arena-verkefni FIFA og KSÍ, sem felur í sér uppsetningu á 40 x 20 m gervigrasvelli án fylliefnis. Óskað er eftir heimild til að hefja umsóknarferlið og ákvörðun um ákjósanlega staðsetningu vallarins. Hofgarður í Öræfum er talinn sterkasti kosturinn, en Hrollaugsstaðir og Mánagarður koma einnig til greina. Umsóknarfrestur er 18. september 2026.
Bæjarráð felur verkefnastjóra uppbyggingar íþrótta- og skólamannvirkja að vinna málið áfram og undirbúa umsóknina. Bæjarráð felur íbúaráði Öræfa að fjalla um málið og koma með tillögu að staðsetningu vallarins.

Samþykkt samhljóða.
6.
Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202608030
Aðalfundur Samtaka Orkusveitarfélaga verður haldinn á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga föstudaginn 21. ágúst 2026, kl. 13:00. Í framhaldi af honum efna samtökin til Orkufundar sem áformað er að hefjist klukkan 14:30. Einn fulltrúi þarf í það minnsta að mæta frá hverju aðildarsveitarfélagi. Einnig eru aðildarsveitarfélög vinsamlegast beðin um að skrá alla fulltrúa ef fleiri en einn mæta fyrir hönd viðkomandi sveitarfélags og taka fram hver fer með atkvæðisrétt.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að mæta á fundinn og fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
7.
Kosning í nefndir 2026-2030
Málsnúmer 202605781
Formaður bæjarráðs leggur til að Wiktoria Anna Darnowska (K lista) verði formaður fjölmenningarráðs á kjörtímabilinu og Maciej Rozanski (D lista) verði varaformaður ráðsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að Wiktoria Anna Darnowska (K lista) verði formaður fjölmenningarráðs á kjörtímabilinu og Maciej Rozanski (D lista) verði varaformaður ráðsins.