Bæjarráð Hornafjarðar
1235. fundur
29. september 2026
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason
formaður
Ingibjörg Sveinsdóttir
varaformaður
Reynir Ásgeirsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Almannavarnanefnd - 71
Fundargerð almannavarnarnefndar nr. 71 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 91
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar nr. 91 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 141
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 141 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027-2031
Fjármálastjóri leggur fram uppfærða verk- og tímaáætlun vegna fjárhagsáætlunar 2027-2031 til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða uppfærða verk- og tímaáætlun vegna fjárhagsáætlunar 2027-2031.
5.
Fundartími bæjarstjórnar
Lagt er til að fresta fundi bæjarstjórnar sem átti að vera fimmtudaginn 8. október kl. 15:00 til fimmtudagins 15. október 2026 kl. 15:00 vegna fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldin verður dagana 8. - 9. október í Reykjavík.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að næsti fundur bæjarstjórnar verði fimmtudaginn 15. október 2026 kl. 15:00.
6.
Fyrirmynd samninga um rekstrarstyrk
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og fjármálastjóri leggja fram drög að fyrirmynd um samninga um rekstrarstyrki sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að rekstrarsamningum og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og fjármálastjóra að undirrita samninga við þá sem þegar hafa hlotið styrk.
7.
Akstursþjónusta íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
Fram hefur komið ósk um að Sveitarfélagið Hornafjörður taki að sér að sinna akstri íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði vegna einkaerinda. Nýverið var gerður samstarfssamningur milli velferðarsviðs og Vigdísarholts ehf. sem kveður á um að Vigdísarholt geti nýtt þjónustu sérútbúinnar bifreiðar akstursþjónustu aldraðra hjá sveitarfélaginu vegna nauðsynlegrar læknisþjónustu. Sá samningur nær ekki yfir ferðir sem íbúar óska eftir til að sinna einkaerindum. Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs um málið, óskað eftir afstöðu bæjarráðs til erindisins og ef komi til þjónustunnar, hvernig hún skuli útfærð.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að velferðarsvið bjóði íbúum skjólgarðs upp á akstursþjónustu í einkaerindum milliliðalaust, með fyrirvara um afkastagetu akstursþjónustunnar hverju sinni. Þá samþykkir bæjarráð samhljóða fyrirliggjandi drög að breytingum á reglum og gjaldskrá Sveitarfélagsins Hornafjarðar um akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks og vísar þeim til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
8.
Samstarfssamningur um akstursþjónustu fyrir Skjólgarð
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs, ásamt drögum að samstarfssamningi á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Vigdísarholts ehf. um framkvæmd akstursþjónustu fyrir íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn. Samningurinn felur í sér að velferðarsvið taki að sér að sinna nauðsynlegum akstri íbúa Skjólgarðs til að sækja heilbrigðis- og læknisþjónustu að beiðni rekstraraðila. Aksturinn verður framkvæmdur af starfsmanni stuðnings- og virkniþjónustu á sérútbúinni bifreið akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks. Sveitarfélagið mun innheimta gjald fyrir þjónustuna hjá Vigdísarholti ehf. sem tekur mið af raunkostnaði við aksturinn, launum bílstjóra og rekstri bifreiðarinnar. Með samningnum er stuðlað að hagkvæmri nýtingu á innviðum og starfsfólki sveitarfélagsins auk þess sem íbúum Skjólgarðs er tryggður öruggur og faglegur flutningur án þess að útgjöld sveitarsjóðs aukist.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðan samning og felur sviðsstjóra velferðarsviðs að undirrita samninginn.
9.
Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um frístundasþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni
Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram drög að endurskoðuðum reglum um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
10.
Reglur um notendasamninga
Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram drög að endurskoðuðum reglum um notendasamninga einstaklinga og barnafjölskyldna í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um notendasamninga við einstaklinga og barnafjölskyldur í Sveitarfélaginu Hornafirði og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
11.
Reglur um notendastýrða persónulega aðstoð
Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram drög að endurskoðuðum reglum um notendastýrða persónulega aðstoð.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um notendastýrða persónulega aðstoð og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
12.
Reglur um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra
Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram drög að endurskoðuðum reglum um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
13.
Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkti uppfærðar reglur um styrk til foreldra vegna aksturs leikskólabarna og vísaði reglunum til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um styrk til foreldra vegna aksturs leikskólabarna og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
14.
Hugmynd að samstarfi við Glaciers of Höfn
Bæjarráð vísaði málinu til umræðu í atvinnu- og menningarmálanefnd og í fræðslu- og frístundanefnd. Báðar nefndir voru jákvæðar fyrir samstarfinu í tengslum við ákveðin verkefni í Grunnskóla Hornafjarðar til að dýpka þekkingu nemenda og vísuðu málinu aftur til bæjarráðs til umræðu um framhald málsins.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að gera drög að samningi við Glaciers of Höfn og fá fjárhagslegt mat á samningnum hjá fjármálastjóra áður en hann verður lagður fyrir bæjarráð til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
15.
Alþjóðleg ráðstefna um friðlýst svæði, atvinnulíf og nærsamfélög
Bæjarstjóri leggur fram minnisblað um hugmyndir um alþjóðlega ráðstefnu um friðlýst svæði, atvinnulíf og nærsamfélög.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
16.
Erindi frá stéttarfélögum um efnahagslegan stöðugleika
Bæjarstjóri leggur fram drög að svörum við erindi frá stéttarfélögum varðandi aðgerðir sveitarfélagsins í tengslum við efnahagslegan stöðugleika. Í svörunum kemur eftirfarandi fram:
Gjaldskrár - hámark 2,5%.
- Sveitarfélagið hefur ákveðið að hækka ekki gjaldskrár umfram 2,5%
- Frá kosningum hefur sveitarfélagið fellt niður kostnað vegna fæðis á leikskólum. Þá er allur skólamatur í sveitarfélaginu að kostnaðarlausu fyrir heimili.
- Fyrirhugaðar eru lækkanir á fráveitu- og fasteignagjöldum.
Framboð byggingarsvæða og byggingarhæfra lóða.
- Nýtt hverfi er í undirbúning og fjöldi lóða verða tilbúnar til byggingar.
- Núna eru þrjár einbýlishúsalóðir og þrjár fjölbýlishúsalóðir í þéttbýli lausar til úthlutunar. Í byggingu eru þrjú fjölbýlishús með samtals 18 íbúðum. Næsta sumar verður lokið við fyrsta áfanga í uppbyggingu nýs íbúðahverfis. Í þeim áfanga verða fjórar einbýlishúsalóðir, þrjár parhúsalóðir og þrjár fjölbýlahúslóðir.
Almennar íbúðir og sérstakur húsnæðisstuðningur.
- Viðræður eru um að Brák íbúðafélag taki yfir Íbúðafélagi Hornafjarðar, alls sex íbúðir. Fyrir nokkru misserum lagði sveitarfélagið fjölmargar íbúðir í Bríet leigufélag. Samhliða þessu var gerð viljayfirlýsing um uppbyggingu á svæðinu.
- Viðmiðunarupphæðir um sérstakan húsnæðisstuðning voru hækkaðar 1. janúar 2026 og er þá horft til nágranna sveitarfélaga. Árlegar er metið hvort ástæða sé til að breyta umræddum upphæðum.
Að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
- Sveitarfélagið býður öllum börnum leikskólapláss við 12 mánaða aldur svo lengi sem grunnmönnum er tryggð.
- Húsnæði leikskólans er nægilega stórt fyrir börn frá 12 mánaða aldri fram að grunnskólagöngu.
Gjaldskrár - hámark 2,5%.
- Sveitarfélagið hefur ákveðið að hækka ekki gjaldskrár umfram 2,5%
- Frá kosningum hefur sveitarfélagið fellt niður kostnað vegna fæðis á leikskólum. Þá er allur skólamatur í sveitarfélaginu að kostnaðarlausu fyrir heimili.
- Fyrirhugaðar eru lækkanir á fráveitu- og fasteignagjöldum.
Framboð byggingarsvæða og byggingarhæfra lóða.
- Nýtt hverfi er í undirbúning og fjöldi lóða verða tilbúnar til byggingar.
- Núna eru þrjár einbýlishúsalóðir og þrjár fjölbýlishúsalóðir í þéttbýli lausar til úthlutunar. Í byggingu eru þrjú fjölbýlishús með samtals 18 íbúðum. Næsta sumar verður lokið við fyrsta áfanga í uppbyggingu nýs íbúðahverfis. Í þeim áfanga verða fjórar einbýlishúsalóðir, þrjár parhúsalóðir og þrjár fjölbýlahúslóðir.
Almennar íbúðir og sérstakur húsnæðisstuðningur.
- Viðræður eru um að Brák íbúðafélag taki yfir Íbúðafélagi Hornafjarðar, alls sex íbúðir. Fyrir nokkru misserum lagði sveitarfélagið fjölmargar íbúðir í Bríet leigufélag. Samhliða þessu var gerð viljayfirlýsing um uppbyggingu á svæðinu.
- Viðmiðunarupphæðir um sérstakan húsnæðisstuðning voru hækkaðar 1. janúar 2026 og er þá horft til nágranna sveitarfélaga. Árlegar er metið hvort ástæða sé til að breyta umræddum upphæðum.
Að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
- Sveitarfélagið býður öllum börnum leikskólapláss við 12 mánaða aldur svo lengi sem grunnmönnum er tryggð.
- Húsnæði leikskólans er nægilega stórt fyrir börn frá 12 mánaða aldri fram að grunnskólagöngu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að senda stéttarfélögunum bókunina.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
17.
Málefni tengd Svæðisstjórn austursvæðis vegagerðar 2026
Bæjarstjóri leggur fram minnisblað fyrir fund með svæðisstjóra Vegagerðarinnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram með Vegagerðinni.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
18.
Veggjald um Hornafjörð
Bæjarstjóri leggur fram minnisblað um samtal við Guðmund Daða Rúnarsson forstjóra Gangna og brúar ohf., nýstofnaðs rekstrar-, fjármögnunar- og eignarhaldsfélags í eigu íslenska ríkisins. Hlutverk félagsins er að undirbúa, hanna, fjármagna og annast framkvæmdir stærri samgöngumannvirkja sem styðja við öruggar, skilvirkar og nútímalegar samgöngur á Íslandi.
Bæjarráð leggur áherslu á áframhaldandi vinnu við lækkun gjaldskrár fyrir nærsamfélagið og þakkar Guðmundi Daða Rúnarssyni fyrir upplýsingarnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
19.
Erindi frá félagasamtökum í Öræfum vegna fjölnota frístundahúss
Erindi bárust frá fjórum félagsamtökum (stjórn Félags fjallaleiðsögumanna á Íslandi - AIMG, Ungmennafélagi Öræfa, Klifurfélagi Öræfa og stjórn Fjallaskóla Íslands) varðandi byggingu fjölnota frístundahúss á svæðinu.
Bæjarráð þakkar innsend erindi. Bæjarráð stefnir á að halda íbúafund í Öræfum um innviðauppbyggingu og fleiri mál er varða hagsmuni sveitarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.