Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

179. fundur
10. maí 2012 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Reynir Arnarson 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Valdemar Einarsson 1. varamaður
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
bæjarráð Hornafjarðar - 586
Málsnúmer 1203027F

Hjalti tók til máls og ræddi um umsögn bæjaráðs um 657. og 658. mál stjórnun fiskveiða<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Ásgrímur Ingólfsson  ræddi einnig um frumvörpin.  Árni Rúnar Þorvaldsson tók einnig til máls og las upp bókun sem hann lagði fram á 586. fundi bæjarráðs taldi hann að í meginatriðum væri nokkuð góð sátt um þessi mál á meðal bæjaráðsmanna. Reynir Arnarson ræddi einnig um málið, lagði hann til að Bæjarstjórn Hornafjarðar geri umsögn bæjarráðs að sinni um frumvörpin.  Hjalti tók aftur til máls  og sagði að kvóti hér hafi dregist saman á undanförnum árum.  Björn Ingi tók einnig til máls um frumvörpin, sagði hann að þau væru mein gölluð.  Hann benti á og fagnaði að sveitarfélagið taki þátt í atvinnuátaki með vinnumálastofnun og Skógræktarfélagi Íslands.  Árni tók aftur til máls.  Ásgrímur Ingólfsson tekur undir orð Björns Inga varðandi frumvörpin, taldi hann  að sérstaka veiðileyfagjaldið væri landsbyggðaskattur.  Reynir tók til máls og ítrekaði að bæjarstjórn gerði umsögn bæjarráðs að sinni.  Árni Rúnar  gerir athugasemd við orð Ásgríms. Ásgrímur svaraði Árna

Forseti bar upp tillög Reynis Arnarsonar um að Bæjarstjórn Hornafjarðar gerði umsögn Bæjarráðs Hornafjarðar um frumvörpin að sinn og var hún samþykkt samhljóða.

 

 

Fundargerð samþykkt samhljóða.
2.
bæjarráð Hornafjarðar - 587
Málsnúmer 1204005F

Árni Rúnar Þorvaldsson las upp fyrirspurn sína  varðandi tölvu og tæknimál <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Ræddi hann um spurningu númer 2 varðandi rekstrarsamning um rekstur á tölvukerfi sveitarfélagsins. Ræddi hann um innkaupareglur sveitarfélagsins, hvort samningurinn rúmaðist innan þeirra.

Björn Ingi ræddi um 5 lið  hækkun á styrk til Humarhátíðar.  Spurning hvort sveitarfélagið eigi að leggja nær alla fjárveitingu í eina hátíð eða stuðla að meiri fjölbreytni í viðburðum í sveitarfélaginu.

 Hjalti Þór Vignisson svaraði Árna og Birni

Árni Rúna Þorvaldsson þakkar Hjalta fyrir svörin, taldi hann að innkaup yrðu að vera í anda þeirra innkaupareglna sveitarfélagsins sem bæjarstjórn hefur samþykkt og telur að hefja eigi undirbúning að útboði á  þessari þjónusta.

 

Reynir vekur athygli á fyrsta lið fundargerðarinnar varðandi dýpkun Hornafjarðarhafnar.


Fundargerð samþykkt samhljóða.

3.
bæjarstjórn Hornafjarðar - 179
Málsnúmer 1204002F

Til kynningar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

4.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2011
Málsnúmer 201203076

Sigurjón Örn Arnarson endurskoðandi fylgdu ársreikningi úr hlaði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Hjalti þakkaði starfsmönnum KPMG, starfsmönnum sveitarfélagsins og bæjarstjórn fyrir góða vinnu á síðasta ári og gott utanumhald um rekstur sveitarfélagsins.  Sagði hann að reikningurinn gefi til kynna góða stöðu sveitasjóðs.

Helstu niðurstöður hans er að afkoma samantekins A og B hluta er jákvæð um 137 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 124 milljóna króna afgangi.  Veltufé frá rekstri nam 268 milljónum króna sem er 32 milljón króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.  Launakostnaður jókst frá fyrra ári um 40 milljónir v. launahækkana og hækkunar á lífeyrisskuldbindingu.  Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.277 milljónum króna í árslok 2011 og lækkuðu um 41 milljónir króna á árinu.  Eigið fé A og B hluta nam í árslok 2.236 milljónum króna í árslok og eiginfjárhlutfall 64,0%.

Björn Ingi Jónsson tekur undir orð bæjarstjóra um góðan ársreikning en hann ræddi einnig um 20 m.kr. fjárútlát  umfram fjárhagsáætlun í framkvæmdum.  Árni Rúna Þorvaldsson þakkar endurskoðanda fyrir greinargóða skýrslu tekur undir orð bæjarstjóra  varðandi reikninginn.

Forseti lagði til að ársreikningi yrði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn samhljóða samþykkt

5.
Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum
Málsnúmer 201009015
Ásgrímur Ingólfsson fylgdi málinu úr hlaði og sagði að einungis væri verið  að fjalla um svör Umhverfis- og skipulagsnefndar við þeim athugasemdum sem bárust og leggur hann til að bæjarstjórn  geri svörin að sínum og sendi þau til þeirra sem málið varðar.
6.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar borist.