Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

140. fundur
17. ágúst 2026 kl. 15:15 - 17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásta Steinunn Eiríksdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage áheyrnarfulltrúi
Ingibjörg Sveinsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Staðan á fræðslu- og frístundasviði í upphafi skólaárs 26-27
Málsnúmer 202608004
Farið yfir stöðuna á fræðslu- og frístundasviði í upphafi skólaárs 2026-2027.
Ágætlega hefur gengið að ráða í stöður á sviðinu þó enn vanti starfsfólk og þá sérstaklega í leikskólann. Vonandi á eftir að rætast úr því á næstu vikum. Ljóst er að það er mikill skortur á leikskólakennurum og einkar ánægjulegt að nú skuli a.m.k. einn starfsmaður hafa sótt um í leikskólakennarafræðum.
Nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar verða álíka margir og undanfarin ár eða 239. Í Hofgarði hefur fjölgað og verða 11 börn í Hofgarði þar af sjö í grunnskólahlutanum. Tvö þau elstu munu að hluta stunda nám við Grunnskóla Hornafjarðar. Börnum mun stöðugt fjölga á Sjónarhóli í vetur og ef áætlanir ganga eftir verða þar. Eru 107 núna áður en aðlögun hefst en verða 138 í vor. Heildarfjöldi nemenda í Tónskólanum verður sennilega í kringum 70 og einhverjir eru á biðlista með að komast inn. Hægt væri að ráða einn kennara í viðbót og það vantar í raun kennara á blásturshljóðfæri.
Framkvæmdir í Sindrabæ eru loksins á lokastigi og næst vonandi að ljúka þeim í haust. Í Hofgarði er verið að taka eldhúsið í gegn og ekki verður hægt að nota það fyrr en á miðju hausti og á meðan fá nemendur mat úr Freysnesi. Í Íþróttamiðstöðinni er verið að leggja lokahönd á ráðningi starfsmanns í íþróttahús. Framkvæmdir í íþróttahúsinu ganga hægt og verður ekki lokið fyrir skólabyrjun.Samtal hefur átt sér stað við körfuknattleiksdeildina um hvað væri hægt að gera til að bæta aðstöðu þeirra. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það. Framkvæmdir í Mánagarði eru hafnar en í Bárunni hafa þær frestast þar sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvernig gras eigi að vera þar en vonandi klárast það fljótlega. Sunlaugin fékk styrk frá ESB til að fara í orkusparandi aðgerðir. Sundlaugin fékk styrk og þar á að stetja varmaskipti þannig að aldrei verði tekið inn kalt vatn í laugina og síðan á að setja yfirbreiðslu á laugina.
Fræðslu- og frístundarnefnd þakkar forstöðumönnum fyrir greinagóðar upplýsingar og gott spjall.
2.
Breyting á einkunnakvarða
Málsnúmer 202608025
Mennta- og barnamálaráðuneytið hrindir í framkvæmd breytingum á námsmati í grunnskólum með það að markmiði að gera einkunnagjöf skýrari, samræmdari og auðskiljanlegri fyrir nemendur, foreldra og skólasamfélagið allt. Áformin fela í sér að einkunnir verði birtar í tölum í stað bókstafa, en samkvæmt gildandi aðalnámskrá byggir námsmat í grunnskóla á bókstafakvarða sem tengdur er hæfni- og matsviðmiðum við lok 4., 7. og 10. bekkjar.Mál lagt fram til kynningar.
3.
Undanþága vegna skólaráðs í samreknum leik- og grunnskóla í Hofgarði
Málsnúmer 202608032
Skólastjóri Hofgarðs hefur óskað eftir undanþágu um 9 manna skólaráð sökum smæðar skólans og leggur til 5 manna skólaráð. Í því sætu þá skólastjóri, einn fulltrúi kennara, einn fulltrúi foreldra, einn fulltrúi nemenda og einn fulltrúi grendarsamfélags.
Fræðslu- og frístundanefnd Hornafjarðar samþykkir að fela sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs, í samráði við skólastjóra Leik- og grunnskólans í Hofgarði, að senda mennta- og barnamálaráðuneytinu rökstudda umsókn um tímabundna undanþágu frá ákvæðum 2. mgr. 8. gr. laga nr. 91/2008 um skipan skólaráðs.
4.
10.bekkingar í hádegismat í Nýheimum í vetur. Tilraunaverkefni
Málsnúmer 202608003
Bæjarráð hefur samþykkt að 10. bekkur Grunnskóla Hornafjarðar muni borða hádegismat í FAS á komandi skólaári. Meginástæður þess eru að efæa samstarf skólastigianna en einnig til að skapa betri aðstæður fyrir nemendur því mjög þröngt yrði um alla nemendur á unglingastigi í matsal grunnskólans ef þeir ættu allir að fara þangað. Mál lagt fram til kynningar.
5.
Íþróttaland
Málsnúmer 202602054
Unnið er að lokaútfærslu á Íþróttalandi sem er íþróttaskóli fyrir börn í 1. og 2. bekk og mun hefja göngu sína í lok mánaðarins. Íþróttaland verður tilraunaverkefni fyrsta árið en það er samstarfsverkefni SVH og umf. Sindra. Í Íþróttalandi verður boðið upp á sund, fimleika, fótbolta, körfubolta og blak. Æfingar verða á starfstíma Kátakots og mun starfsmaður Kátakots halda utan um skipulag og stuðning við börn í Íþróttalandinu á meðan þjálfarar Sindra sjá um sjálfar æfingarnar. Markmiðið með íþróttaskólanum er margþætt;-Jafna tækifæri barna til íþróttaiðkunar-Vinna að samfellu í dagskrá barna og að dagskrá sé lokið um 16:00-Auka samvistir fjölskyldunnar-Auka þátttöku barna í skipulögðu íþrótta og tómstundastarfi-Styðja vi heilsuefling til lengri tíma-Styðja við hverskonar forvarnir og draga úr snemmbærri sérhæfingu
Fræðslu- og frístundanefnd fagnar tilkomu Íþróttalands. Um leið og nefndin hvetur til góðrar kynningar á verkefninu og óskar því góðs brautargengis þá minnir hún á að þetta er tilraunaverkefni sem á eftir að þróast og mótast.
6.
Vinnuskóli Hornafjarðar 2026
Málsnúmer 202603046
Skýrsla vinnuskólans fyrir sumarstarfið lögð fram til kynningar um umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir upplýsandi og góða skýrslu. Vinnuskólinn gekk vel í sumar og flestir sammála um að bærinn líti vel út. Flokksstjórar og eldri starfsmenn voru alls 7 og var síðasti starfsdagur hjá þeim 13. ágúst. Börnin í vinnuskólanum voru 45 sem er mikil aukning frá í fyrra. Þau hófu störf 8. júní og síðasti vinnudagur þeirra var 29. júlí. Náið samstarf var á milli vinnuskólans og sumarfrístundarinnar. Það samstarf gekk vel þó ljóst sé að það þurfi að skýra hlutverkin betur.
7.
Sumarfrístund 2026
Málsnúmer 202602162
Samantekt um starfsemi sumarfrístundar lögð fram og rædd. Miklar breytingar urðu á sumarfrístundinni í sumar. Nú er sumarfrístundin á lokametrunum og næstu dagar og vikur verða notaðar til í að meta starfið og koma með tillögur að fyrirkomulagi næsta sumars. Á þessum tímapunkti er gott að fá ábendingar og innlegg frá fræðslu- og frístundanefnd til að nýta í komandi vinnu.
Fræðslu- og frístundanefnd lýsir ánægju með hvernig til tókst með sumarfrístundina og hvetur starfsfólk til að halda áfram að þróa hana og bæta. Ýmsar tillögur og ábendingar komu frá starfsfólki sem nefndin var sammála um og tekið verður tillit til þegar skipulag næsta sumars verður ákveðið. Fræðslu- og frístundanefnd óskar eftir því að fá kynningu á fyrirkomulaginu sumarfrístundar 2027 þegar það verður ljóst.
8.
Styrktar- og afrekssjóður USÚ - endurskoðun á framlagi SVH til sjóðsins
Málsnúmer 202606149
Styrktar og afrekssjóður USÚ hefur verið starfræktur í mörg ár með styrk frá Sveitarfélaginu Hornafirði. Ósk kom frá USÚ um að endurskoða samninginn og eru drög að nýjum samningi lögð fram.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar gestum frá USÚ fyrir upplýsandi samtal og vísar áframhaldandi samningsgerð til starfsmanna.
9.
FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ - opið fyrir umsóknir
Málsnúmer 202608031
FIFA Arena er nýtt verkefni sem Alþjóða knattspyrnusambandið (FIFA) hefur sett af stað til að byggja upp mini-knattspyrnuvelli (mini-pitches) víðs vegar um heiminn. Markmiðið er að skapa öruggar, aðgengilegar og góðar knattspyrnuaðstæður fyrir börn og ungmenni, sérstaklega í samfélögum þar sem aðstöðu til knattspyrnuiðkunar er ábótavant. Mikilvægt er að vellirnir séu öruggir fyrir börn og ungmenni til að stunda knattspyrnu eða annan leik. Vellirnir geta verið vettvangur sem eykur aðgengi að íþróttinni og getur stuðlað að aukinni þátttöku barna og ungmenna í knattspyrnu. FIFA sér um uppsetningu vallarins og annars sem honum tilheyrir - að undanskildu undirlagi, aðgengi og umhverfisfrágangi.
Fræðslu- og frístundarnefd fagnar Fifa Arena verkefninu og hvetur til þess að sótt verði um völl og honum verði fundinn staður í dreifbýlinu og var sérstaklega rætt um Öræfin. Sparkvöllur í Öræfum myndi bæta aðstöðu til hreyfinga og leikja og styðja við heilsueflingu óháð aldri.
10.
Fundarbúnaður í félagsheimilum
Málsnúmer 202608041
Á undanförnum árum hefur verið komið upp stórum sjónvörpum sem innihalda fjarfundabúnað í Hofgarði, Hrollaugsstöðum, Holti og Mánagarði. Í Hrollaugsstöðum hentar að hafa búnaðinn fastan á vegg en í hinum húsunum hentar betur að hafa hann færanlegan og á hjólum og eru sjónvörpin á sérstökum vagni á hjólum. Hjólastandurinn er hins vegar mjög hár og ekki hægt að fara með sjónvarpið milli herbergja. Fræðslu- og frístundanefnd óskar eftir því að brugðist verði við þessum annmörkum og fengnir fætur undir sjónvörpin sem hægt er að hækka og lækka svo hægt sé að koma búnaðinum á milli herbergja.Málinu vísað til starfsmanna umhverfis- og skipulagssviðs.
Fræðslu- og frístundanefnd vonar að með þessum úrbótum nýtist útbúnaðurinn betur.
11.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs sem breytast 1.ágúst 2026
Málsnúmer 202606018
Að gefnu tilefni vill fræðslu- og frístundanefnd taka fram að fæði hjá börnum sem eru í dagvist og eru orðin 12 mánaða verður greitt af sveitarfélaginu líkt og í leikskóla frá og með 1. ágúst 2026.Mál lagt fram til kynningar.