Fara í efni
03.11.2026

Auglýsing um íbúakosningu

Deildu

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum 3. nóvember 2026 að fram færi ráðgefandi íbúakosning um fyrirhugaðan samning sveitarfélagsins við Landsbyggð hf. vegna uppbyggingar á nýjum miðbæ á Höfn, sbr. 4. lið, ásamt fylgigögnum, sbr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og reglugerð nr. 922/2023 um íbúakosningar sveitarfélaga, með síðari breytingum.

Atkvæðagreiðslan fer fram dagana 5.–15. desember 2026, að báðum dögum meðtöldum. Atkvæðagreiðslan er ráðgefandi og ekki bindandi í skilningi 3. mgr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga. Bæjarstjórn lýsir þeim vilja sínum að leggja niðurstöðuna til grundvallar frekari afgreiðslu málsins, að virtum lögum og lögbundinni málsmeðferð.

Tillaga að deiliskipulagi miðbæjar Hafnar sætir málsmeðferð samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010 og verður tekin til afgreiðslu að lokinni þeirri málsmeðferð, að virtum athugasemdum sem berast.

Kosningarrétt hafa íbúar sveitarfélagsins sem uppfylla skilyrði  2. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, að því frátöldu að kosningaaldur miðast við 16 ár á lokadegi atkvæðagreiðslunnar, 15. desember 2026, sbr. 3. og 4. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga og 2. gr. reglugerðar nr. 922/2023.

Atkvæðagreiðslan fer fram á kjörstað. Ekki verður boðið upp á atkvæðagreiðslu með pósti, sbr. heimild í 10. gr. reglugerðar nr. 922/2023.

Sveitarfélaginu verður skipt í tvær kjördeildir:

  • Kjördeild I: Kjósendur með lögheimili í póstnúmerum 780 og 781.
  • Kjördeild II: Kjósendur með lögheimili í póstnúmeri 785.

Kjörstaður beggja kjördeilda verður í ráðhúsinu á Höfn, að frátöldum laugardeginum 5. desember 2026  þegar kjörstaður kjördeildar II verður í Hofgarði í Öræfum, kl. 09:00–15:00. Á þeim tíma verður kjördeild II ekki opin í ráðhúsinu.

Atkvæðagreiðsla fer fram daglega kl. 09:00–15:00, alla daga kosningatímabilsins, þar með talið laugardaga og sunnudaga.

Spurning á kjörseðli verður eftirfarandi:

Á fundi bæjarstjórnar 3. nóvember 2026 var samþykkt tillaga um að efnt yrði til ráðgefandi íbúakosningar um fyrirhugaðan samning Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar hf., dags. 31. október 2026, ásamt fylgiskjölum, um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn sbr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og reglugerð nr. 922/2023 um íbúakosningar sveitarfélaga.

Spurning:
Samþykkir þú framangreinda tillögu um samning við Landsbyggð?

[ ] Já – Ég samþykki tillöguna
[ ] Nei – Ég hafna tillögunni