Fara í efni
12.08.2026

Einstaklingsstuðningur, félagsleg liðveisla

Deildu

Félagsþjónusta Hornafjarðar auglýsir eftir einstaklingum til að sinna einstaklingsstuðningi með börnum.

Markmið með einstaklingsstuðningi er að rjúfa félagslega einangrun, efla lífsleikni, samfélagsþátttöku, efla börn til aukinnar sjálfshjálpar og létta álagi af fjölskyldu og barninu sjálfu.

Ungt fólk, 18 ára og eldra, af öllum kynjum er sérstaklega hvatt til þess að sækja um.

Um er að ræða úrræði veitt á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og barnaverndarlaga.

Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við Sædísi Ösp.

Sædís Ösp Valdemarsdóttir
Umsjónarfélagsráðgjafi