Áhersla á hag fjölskyldna og lækkun álagninga var eitt af meginþemum í málefnasamningi núverandi bæjarstjórnar. Nú þegar hefur fyrsta skrefið verið stigið í þá átt. Frá og með 1. ágúst verða fæðisgjöld felld niður í leikskóla og lengdri viðveru auk þess sem útreikningur á systkinaafslætti breytist foreldrum í hag. Nýjar gjaldskrár fyrir leikskóla og Kátakot eru komnar á vef sveitarfélagsins.
Nú greiða foreldrar með eitt barn í fullri vistun í leikskóla nú um 30% lægra gjald á mánuði eftir að fæðisgjöld voru felld niður. Foreldrar með tvö börn í fullri vistun í leikskóla fá um 13% meiri systkinaafslátt en var og í heild hafa leikskólagjöld á þá fjölskyldu lækkað um tæp 45% milli mánaða eða úr 64.816 krónum á mánuði í 35.241kr.
Í þessum útreikningum er ekki reiknað með kortersgjaldi eða skráningardögum.
