Fara í efni
29.06.2026

Fjölmennur fundur um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón

Deildu

Miðvikudaginn 24. júní stóðu Náttúruverndarstofnun, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörður sameiginlega að opnum íbúafundi á Hrollaugsstöðum í Suðursveit um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón.  

Fundurinn var liður í áframhaldandi samráði við íbúa og aðra hagsmunaaðila um þróun svæðisins. Markmið hans var að kynna stöðu verkefnisins, fara yfir þá vinnu sem þegar hefur verið unnin og ræða næstu skref í ferlinu. Jafnframt gafst fundargestum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og ábendingum á framfæri þannig að þau geti nýst við áframhaldandi mótun verkefnisins.

Á fundinum gerði Björn Helgi Barkarson skrifstofustjóri hjá Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneyti grein fyrir vinnu stýrihóps um uppbyggingu og ráðstöfun heimilda til reksturs við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Þá kynnti Helga Árnadóttir stöðu vinnu við breytingu á deiliskipulagi svæðisins.

Sjónarmið nærsamfélagsins voru jafnframt í forgrunni fundarins. Þar fluttu erindi Eyrún Fríða Árnadóttir formaður svæðisráðs Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri Hornafjarðar og Laufey Guðmundsdóttir formaður Ferðamálasamtaka Austur-Skaftafellssýslu. Í erindum þeirra var lögð áhersla á mikilvægi þess að uppbygging við Jökulsárlón taki mið af þörfum og hagsmunum heimabyggðarinnar.  Það væri í fullu samræmi við lög þjóðgarðsins og liður í því að uppfylla markmið hans

Fundurinn var vel sóttur og urðu líflegar umræður þar sem fjölmargir fundargestir komu sjónarmiðum sínum á framfæri.