Í tengslum við fund Ríkisstjórnar Íslands og bæjarstjórnar Hornafjarðar á Höfn þann 13. ágúst rituðu Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra undir viljayfirlýsingu um yfirfærslu eigna Kvískerjasjóðs til Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Ásamt þeim ritaði Árni M. Mathiesen, formaður stjórnar Kvískerjasjóðs undir viljayfirlýsinguna.
Markmið viljayfirlýsingarinnar er að tryggja að hið merka ævistarf Kvískerjasystkina og framlag þeirra til þekkingarsköpunar verði áfram haft í heiðri. Sameiginlegur ásetningur aðila er að leggja Kvískerjasjóð formlega niður og ráðstafa fjármunum hans að loknu uppgjöri til Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í gegnum Sveitarfélagið Hornafjörð. Fjármunirnir verði nýttir til afmarkaðra verkefna sem hafa það að meginmarkmiði að kynna og heiðra lífsstarf og arfleifð systkinanna á Kvískerjum.
Stefnt er að því að vinnu við yfirfærsluna ljúki á haustmánuðum 2026.
