Fara í efni
30.09.2026

Fundur bæjarstjórnar með þingmönnum Suðurkjördæmis

Deildu

Bæjarstjórn Hornafjarðar fundaði með þingmönnum Suðurkjördæmis á Höfn 28. september. Fjölmörg hagsmunamál sveitarfélagsins voru til umræðu, meðal annars málefni Vatnajökulsþjóðgarðs, samgöngur, menntamál, innviðir og atvinnumál.

Atvinnuuppbygging við Jökulsárlón

Rætt var um fyrirhugaða uppbyggingu við Jökulsárlón og mikilvægi þess að hagsmunir nærsamfélagsins séu hafðir að leiðarljósi. Bæjarstjórn telur mikilvægt að aðskilja uppbyggingu innviða frá úthlutun rekstrarleyfa og að samfélags- og umhverfisþættir vegi þar þungt.

Bent var á að Skaftafell og Höfn séu skilgreind sem meginstarfsstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs samkvæmt lögum. Innviðir í Skaftafelli séu komnir að þolmörkum, gestastofan hafi lítið breyst frá árinu 1974 og enn sé engin gestastofa á Höfn.

Bæjarstjórn telur að lög um nýtingu lands í eigu ríkisins í atvinnuskyni taki ekki nægjanlegt tillit til uppbyggingar atvinnulífs og samfélaga á nærsvæðum. Lagt var til að meðal markmiða laganna verði að efla byggð á grannsvæðum, í samræmi við eitt af markmiðum Vatnajökulsþjóðgarðs.

Veggjald yfir Hornafjörð

Nýr vegur yfir Hornafjörð er mikið framfaraskref sem þéttir byggðarlagið og stækkar vinnusóknarsvæði Hafnar. Gerðar voru athugasemdir við fyrirhugað veggjald, meðal annars að það verði þrefalt hærra en yfir Ölfusárbrú og kallað eftir gagngerri endurskoðun á afsláttarkerfi veggjalda. 

Rætt var um nauðsyn á umfangsmiklum vegbótum í sveitarfélaginu, þar sem 192 kílómetrar Hringvegar liggja. Með vegbótum í Öræfum, Lóni og Breiðamerkursandi er gert ráð fyrir að einbreiðum brúm fækki úr tólf í eina, auk þess sem vegalengdir styttast og umferðaröryggi eykst.

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

Bæjarfulltrúar lögðu áherslu á að FAS er einn af hornsteinum byggðarinnar og aðgengi að framhaldsnámi lykilatriði fyrir samfélagið. Rætt var um aukið samstarf við Verkmenntaskóla Austurlands og milli grunn- og framhaldsskóla. Þá var rætt um nauðsyn á uppbyggingu nemendagarða.

Ofanflóðalög og Svínafellsheiði

Bæjarstjórn hefur gert athugasemdir við frumvarp um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og telur skilgreiningu á ofanflóðum og afleiddri náttúruvá ófullnægjandi. Sérstaklega er bent á hættu vegna mögulegrar flóðbylgju í jökullóni við Svínafellsheiði og þá réttaróvissu sem núverandi fyrirkomulag skapar varðandi skipulag og mögulegar varnaraðgerðir.

Grynnslin og Hornafjarðarós

Þriggja ára samningur er í gildi um aukna dýpkun á Grynnslunum og árangur fyrsta sumarsins lofar góðu. Rætt var um mikilvægi samningsins vegna uppsjávarveiða og -vinnslu á Höfn.  Jafnframt var lögð áhersla á áframhaldandi rannsóknir á mögulegum leiðigörðum.

Björgunarmiðstöð í Öræfum

Unnið er að undirbúningi björgunarmiðstöðvar í Öræfum sem yrði sameiginleg miðstöð viðbragðsaðila á svæðinu. Þar er horft til samstarfs slökkviliðs, sjúkraflutninga, heilsugæslu, lögreglu og Vegagerðarinnar.

Fjallaskóli Íslands

Rætt var um áframhaldandi uppbyggingu sérhæfðs náms í fjallamennsku við rætur Vatnajökuls. Fjallaskóli Íslands er nú sjálfstæður skóli og sveitarfélagið leggur honum til aðstöðu í Hofgarði án endurgjalds. Bæjarstjórn hvetur til þess að áfram verði stutt við rekstur skólans.