Fara í efni
05.06.2026

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Hornafjarðar

Deildu

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Hornafjarðar fór fram á dögunum, þar sem kosið var í helstu trúnaðarstöður sveitarfélagsins fyrir komandi kjörtímabil.

Ingibjörg Sveinsdóttir var kjörin forseti bæjarstjórnar. Hjördís Edda Olgeirsdóttir var kjörin fyrsti varaforseti og Eyrún Fríða Árnadóttir annar varaforseti.

Jafnframt var skipað í bæjarráð. Gauti Árnason var kjörinn formaður bæjarráðs og Ingibjörg Sveinsdóttir varaformaður. Reynir Ásgeirsson tekur einnig sæti í bæjarráði sem aðalmaður. Eyrún Fríða Árnadóttir verður áheyrnarfulltrúi í bæjarráði.

Á fundinum var einnig skipað í fastanefndir sveitarfélagsins ásamt öðrum nefndum og ráðum. Hægt er að sjá nefndaskipan í fundargerð bæjarstjórnar.

Á fundinum var jafnframt samþykkt tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar. Samþykkt var að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála á meðan sumarleyfi bæjarstjórnar stendur.

Fyrsti fundur bæjarráðs á nýju kjörtímabili verður haldinn 16. júní. Eftir það mun ráðið funda á tveggja vikna fresti fram til 20. ágúst 2026, þegar bæjarstjórn kemur saman að nýju eftir sumarleyfi.