Fara í efni
10.07.2026

Fyrsti fundur stýrihóps um ný íþróttamannvirki

Deildu

Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti 30. júní nýtt erindisbréf fyrir stýrihóp um undirbúning byggingar nýrra íþróttamannvirkja í Sveitarfélaginu Hornafirði. Stýrihópurinn kom saman til síns fyrsta fundar þann 6. júlí. Formaður hópsins er Björgvin Óskar Sigurjónsson, varaformaður er Hjördís Edda Olgeirsdóttir og auk þeirra sitja Reynir Ásgeirsson og Eyrún Fríða Árnadóttir í hópnum.

Samkvæmt erindisbréfinu er hlutverk stýrihópsins að leiða undirbúning vegna uppbyggingar nýrra íþróttamannvirkja í Sveitarfélaginu Hornafirði. Meginverkefnið fyrstu mánuðina verður að greina þrjá valkosti um staðsetningu nýs íþróttahúss á Höfn og meta þá meðal annars með hliðsjón af framkvæmdar- og rekstrarkostnaði, áhrifum á nærumhverfið, tengslum við aðrar byggingar og framtíðarsýn um uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu.

Á næstu vikum verður lögð áhersla á samráð við þá sem nýta íþróttamannvirkin, meðal annars skólasamfélagið, íþróttafélög og aðra hagaðila samhliða því að vinna heildstæða greiningu á framkvæmdar- og rekstrarkostnaði.  Jafnframt er stefnt að því að halda opinn íbúafund á haustmánuðum þar sem kynnt verður staða verkefnisins og kallað eftir sjónarmiðum íbúa áður en frekari ákvarðanir verða teknar.