Fara í efni
19.06.2026

Hjalti Þór Vignisson ráðinn bæjarstjóri Hornafjarðar

Deildu

Á 1224. fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem haldinn var 16. júní 2026, var ráðningarsamningur við Hjalta Þór Vignisson samþykktur.


Samkvæmt ráðningarsamningi verða mánaðarlaun bæjarstjóra 1.750.000 krónur. Öll yfirvinna er innifalin í þeirri fjárhæð og taka launin breytingum í samræmi við kjarasamninga launanefndar sveitarfélaga og BHM. Sveitarfélagið greiðir lögbundin mótframlög í lífeyrissjóð auk 2% mótframlags í viðbótarlífeyrissparnað gegn jafnháu framlagi bæjarstjóra.

Jafnframt fær Hjalti bifreiðastyrk fyrir akstur á eigin bifreið allt að 600 km á mánuði samkvæmt gjaldskrá Ferðakostnaðarnefndar ríkisins, sem miðað við núverandi forsendur nemur um 85 þúsund krónum á mánuði. Sveitarfélagið leggur honum einnig til farsíma og fartölvu og greiðir kostnað vegna fjarskipta og nettengingar.

Auk starfskjara samkvæmt ráðningarsamningi mun Hjalti, sem kjörinn bæjarfulltrúi, fá greidd laun fyrir setu í bæjarstjórn. Mánaðarleg þóknun bæjarfulltrúa nemur 161.000 krónum og greiðsla fyrir hvern setinn fund bæjarstjórnar er 80.500 krónur. Heildarlaun nema því um 2.157.00 kr. á mánuði. 

Ráðningarsamningurinn gildir frá 15. júní 2026 til loka kjörtímabils bæjarstjórnar árið 2030. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með sex mánaða fyrirvara og kveður jafnframt á um sex mánaða biðlaun komi ekki til endurráðningar.

Hjalti er Hornfirðingur að uppruna, fæddur á Höfn árið 1978 og uppalinn í Nesjum og á Mýrum. Samhliða námi starfaði hann við rannsóknir hjá Háskóla Íslands og hóf síðar störf hjá Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem hann vann fyrst að stjórnsýslu- og menningarmálum áður en hann varð bæjarstjóri. Undanfarin ár hefur Hjalti starfað í sjávarútvegi og útflutningi sjávarafurða. Hann starfaði meðal annars hjá Iceland Pelagic og Skinney-Þinganesi áður en hann tók við starfi framkvæmdastjóra Storma ehf. Þar hefur hann leitt uppbyggingu og rekstur fyrirtækisins, meðal annars með stofnun og rekstri dótturfélags í Frakklandi. Hjalti hefur því bæði reynslu af sveitarstjórnarmálum, atvinnulífi og alþjóðlegum viðskiptum.



Á myndinni er Hjalti Þór ásamt bæjarráði Hornafjarðar eftir fyrsta fund, Reyni Ásgeirssyni, Ingibjörgu Sveinsdóttur varaformanni bæjarráðs, Eyrúnu Fríðu Árnadóttur áheyrnarfulltrúa og Hjördísi Eddu Olgeirssdóttur sem sat fundinn í fjarveru Gauta Árnasonar, formanni bæjarráðs.