Í tengslum við Framtíðarsýn í málefnum aldraðra 2026-2034 sem samþykkt var í bæjarstjórn í upphafi árs 2025, var skipaður spretthópur sem hefur það hlutverk að meta gæði og framtíð verkefnisins “Heilsuþjálfun Höfn” og heilsueflingu eldri borgara almennt á Hornafirði.
Verkefni hópsins er m.a. að fara yfir þá heilsueflingu og hreyfingu sem nú þegar er í boði og kanna hvað íbúar 60 ára og eldri telja að bæta þurfi við.
Af því tilefni biðjum við fólk 60 ára og eldra taka þátt í stuttri könnun um málefnið. Með svörunum fær spretthópurinn betri mynd af áhuga og þörfum íbúa og hvað fólk vill sjá í boði í framtíðinni.
Könnunin er nafnlaus og tekur aðeins nokkrar mínútur að svara.
Við hvetjum einnig aðstandendur, vini og kunningja til að vekja athygli fólks 60 ára og eldra á könnunni og aðstoða við að svara ef þörf er á.
Miðvikudaginn 9. september nk. milli kl. 13-14:30 verður starfsmaður félagsþjónustunnar í Ekru og veitir þeim sem óska aðstoð við að svara könnunni. Þátttaka sem flestra skiptir máli. Með því að svara getur þú haft áhrif á hvernig heilsuefling fyrir 60 ára og eldri þróast í sveitarfélaginu.
F. h. spretthóps.
Ragnheiður Rafnsdóttir
Verkefnastjóri Iðju og dagþjónustu
Sveitarfélagið Hornafjörður
